Á Safnanótt föstudagskvöldið 2. febrúar kl 21:00 verður haldið tilraunakvöld listamanna í Molanum. Þetta er þriðja tilraunakvöldið sem haldið hefur verið í Molanum en þau hafa notið miklilla vinsælda hingað til. Tónlistafólk, uppistandarar, dansarar og myndlistamenn munu stíga á svið og sýna áhorfendum brot af fjölbreyttum verkum í vinnslu.
Húsið opnar kl 20:30 þar sem boðið verður uppá léttar veitingar og sýning hefst svo klukkan 21:00.
Fram koma:
Pink X-ray
Inga Steinunn með uppistandið sitt Allt í góðu lagi
Krassoff ásamt dönsurnum
Amor Vincit Omnia
Eyrað eftir Lilju Maríu Hönnudóttur
Frítt inn og brjáluð stemming, hvetjum öll til að mæta!
Molinn er við Hábraut 2, við bílastæðahúsið gegnt Salnum og við hlið safnaðarheimilis Kópavogskirkju.