12.júl 2018 18:00

Tónleikar Bachelsis

Gerðarsafn

Sumartónleikar Bachelsis verða haldnir næsta fimmtudag kl. 18. í sýningarsal Gerðarsafns

Sumartónleikar Bachelsis verða haldnir næstkomandi fimmtudag, 12. júlí, kl. 18. í sýningarsal Gerðarsafns, innan um verk Gerðar Helgadóttur á yfirstandandi sýningu safnsins; Gerður: Yfirlit. Bachelsi samanstendur af fiðluleikurunum Ingibjörgu Ástu Guðmundsdóttur og Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur en þær kynntust við nám í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Í sumar hafa þær tekið fyrir tónverk J. S. Bach með nýrri nálgun og útsett með fleiri hljóðfæraleikurum.  Tónleikarnir eru tæpur klukkutími að lengd og að þeim loknum er boðið upp á bakkelsi á neðri hæð safnsins þar sem áður var Garðskálinn. Tónlistarmenn sem koma fram ásamt tvíeykinu eru:  Katrín Helga Ólafsdóttir á rafbassa, Rögnvaldur Konráð Helgason, óbó og Brynjar Friðrik Pétursson á klassískum gítar.
Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum á vegum Kópavogsbæjar og aðgangur er ókeypis.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

24
okt
Bókasafn Kópavogs
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

26
okt
Bókasafn Kópavogs
26
okt
Bókasafn Kópavogs
27
okt
Bókasafn Kópavogs
28
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndaspjall

28
okt
Bókasafn Kópavogs
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

11
nóv
Gerðarsafn

Sjá meira