Fimmtudaginn 25. júní kl. 19.00 mun strengjatríóið Tríó Sól flytja ljúfa tóna í Gerðarsafni í samtali við verk Gerðar Helgadóttur.
Tríó Sól er nýlega skipað þeim Maríu Emilíu Garðarsdóttur fiðluleikara, Sólrúnu Ylfu Ingimarsdóttur fiðluleikara og Þórhildi Magnúsdóttur víóluleikara. Þær eiga það sameiginlegt að stunda allar nám við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn.
Tónleikarnir fara fram á neðri hæð safnsins, inn í grunnsýningunni GERÐUR þar sem sjónum er beint að járnverkum Gerðar frá 6. áratugnum. Gerður Helgadóttir hlustaði mikið á tónlist þegar hún vann að verkum sínum, sér í lagi klassíska tónlist, og má finna ýmsar tilvísanir í tónlist í titlum verka hennar. Á tónleikunum mun Tríó Sól flytja valin verk eftir tónskáldin Antonín Dvorák og Arcangelo Corelli.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!