09.ágú 2025 13:00 - 15:00

Trönur fyrir frið

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn | 1. hæð

Origami fjölskyldusmiðja á Bókasafni Kópavogs. 

Tranan er tákn fyrir frið og hamingju í Japan. Að brjóta trönu er orðin táknræn athöfn fyrir óskina um frið en samkvæmt japanskri þjóðtrú getur tranan uppfyllt einlægar óskir. 

Hugmyndin um að brjóta 1000 trönur fyrir frið er sprottin úr sögunni um Sadako sem fékk hvítblæði þegar hún var 10 ára vegna geislavirkni frá kjarnorkusprengjunum sem varpað var á Hírósíma og Nagasakí. Hún einsetti sér að brjóta 1000 trönur svo hún fengi ósk sína uppfyllta að ná heilsu að nýju. Hún lést því miður eftir harða baráttu við veikindi sín en þá hafði hún náð að búa til sex hundruð fjörutíu og fjórar trönur. Vinir hennar komu þá saman og kláruðu að brjóta trönurnar í minningu hennar og allra barna sem fallið hafa sökum stríðs með óskina um frið handa öllum börnum að leiðarljósi.

Þann 6. og 9. ágúst eru 80 ár frá því að kjarnorkusprengjum var varpað ár Hírósíma og Nagasakí. Við viljum bjóða börnum og fjölskyldum að koma á Bókasafnið og búa til trönur fyrir frið og eiga ljúfa friðarstund saman og senda óskina um frið út í alheiminn, óskina um heim án kjarnorkuvopna, óskina um heim án stríðs.   

Leiðbeinandi er Guðrún Helga Halldórsdóttir, formaður íslensk-japanska félagsins á Íslandi. Hún kynntist japönsku pappírsbroti þegar hún for til Kurobe í Japan sem hluti af ungmennaskiptum Lions og hefur verið forfallin aðdáandi Origami allar götur síðan. 

Öll hjartanlega velkomin meðan húsrúm leyfir.

Deildu þessum viðburði

02
feb
Bókasafn Kópavogs
09
feb
Bókasafn Kópavogs
16
feb
Bókasafn Kópavogs
23
feb
Bókasafn Kópavogs
02
mar
Bókasafn Kópavogs
09
mar
Bókasafn Kópavogs
16
mar
Bókasafn Kópavogs
23
mar
Bókasafn Kópavogs
30
mar
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
feb
Salurinn
13:30

Dáland

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
03
maí
Gerðarsafn
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Gerðarsafn
04
feb
Náttúrusafn Kópavogs
06
feb
06
feb
Salurinn

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

02
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
06
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

06
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira