Kópavogsbær býður á tvenna ókeypis tónleika í heimahúsum með tónlist ftir tónskáldið Michel Legrand en hann er helst þekktur fyrir að hafa samið söngleiki og tónlist fyrir kvikmyndir. Lögin verða flutt á íslensku og eru textarnir samdir af Árna Ísakssyni og Braga Valdimari Skúlasyni.
Flytjendur eru Heiða Árnadóttir söngkona og Gunnar Gunnarsson píanóleikari en þau hafa verið að flytja tónlist Legrand undanfarin ár. Nú eru þau búin að taka upp geisladisk sem mun koma út í haust.
Tónleikarnir verða haldnir 9. maí í Hlíðarhjalla og 16. maí í Naustavör. Vegna þess að tónleikarnir verða í heimahúsum og það eru takmörkuð sæti þarf því að skrá sig á tónleikana með því að senda póst á
meðfylgjandi netfang: heidaoggunni@gmail.com
Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.