21.mar 2026 20:00

Bjarni Daníel | Söngvaskáld

Salurinn

6500 - 7.500 kr.

DIT-hugmyndafræðin (Do-It-Together eða Gerum-það-saman) hefur verið ráðandi straumur í grasrót reykvísku tónlistarsenunnar í bráðum tíu ár, ekki síst fyrir tilstilli listasamlagsins Post-dreifingar sem fæddist til ljóss og lífs 2017. Allar götur síðan hefur tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel verið einn helsti kyndilberi þessarar hreyfingar, jöfnum höndum sem lagahöfundur og söngvari hljómsveita á borð við Supersport!, Skoffín og bagdad brothers, sem skipuleggjandi hjá Post-dreifingu, og sem útvarpsmaður á báðum rásum Ríkisútvarpsins.

Árið 2025 var ferill Bjarna Daníels markaður ævintýramennsku og flakki, en eftir að hafa túrað um Evrópu þvers og kruss með Supersport! til að fylgja eftir verðlaunaplötunni “Allt sem hefur gerst” í sumar, fluttist hann tímabundið til Torino á Norður-Ítalíu til pródúsera aðra breiðskífu ítölsku post-pönk sveitarinnar Tanz Akademie en vinna jafnframt að efni fyrir sína fyrstu sóló plötu, “DÍSEL” sem er væntanleg til útgáfu með vori.

Þann 21. mars kemur Bjarni Daníel fram á tónleikaröðinni Söngvaskáld í Salnum, og kynnir þar efni tengt komandi verkefnum, auk þess að líta aðeins yfir farinn veg og leika lög úr fortíð, nútíð og framtíð í viðkvæmum, berskjölduðum útsetningum.

Tónleikaröðin Söngvaskáld hefur sitt þriðja starfsár í haust en hún er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila sín lög og segja frá tilurð þeirra. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar aðferðir tónlistarfólks við lagasmíðar og gefur þjóðþekktum lögum meiri dýpt.

Söngvaskáldin starfsárið ‘25-’26 eru Árný Margrét, Salka Valsdóttir, Bjarni Daníel og Daði Freyr.

Deildu þessum viðburði

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

08
nóv
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
17
okt
Bókasafn Kópavogs
17
okt
Bókasafn Kópavogs
18
okt
Salurinn
19
okt
Bókasafn Kópavogs
20
okt
Bókasafn Kópavogs
21
okt
Gerðarsafn
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
11:00

Krakkabíó

22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs
22
okt
23
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

16
okt
Salurinn
17
okt
Salurinn
18
okt
Salurinn
22
okt
Salurinn
25
okt
Salurinn
17:00

Dolly Parton

31
okt
Salurinn
31
okt
03
nóv
Salurinn
19:30

Sweeney Todd

Sjá meira