29.mar 2026

Lögin hennar mömmu

Salurinn

Salurinn
8.500 - 9.900 kr.

Við þökkum frábærar viðtökur síðasta haust, endurtökum nú leikinn og teljum í allar dýrðlegu dægurflugurnar sem mömmur okkar og ömmur sungu hástöfum við heimilisverkin á 5.,6. & 7.áratug síðustu aldar.

Söngvararnir Hera Björk, Einar Örn og Bjarni “Töfrar” Baldvins leiða hér saman hesta sína og flytja lögin sem að mömmur & ömmur rauluðu við heimilistörfin á 5.,6. og 7.áratug síðustu aldar. Þau syngja lögin, segja sögurnar og rifja upp alla gömlu góðu hittarana á borð við Heyr mitt ljúfasta, Björt mey, Lóa litla, Fjórir kátir, Halló, Þrek og tár, Bjössi á Mjólkur, Vegir liggja, Vertu ekki að horfa ofl. ofl. ofl.!  Og þetta gera þau undir dillandi hljóðfæraleik hljómsveitar meistara Björns Thoroddsen, en hana skipa auk gítarmeistara Björns, Matti Kallio á píanó, Sigfús Óttarsson á Trommur og Jón Rafnsson á bassa.

Heru Björk þarft nú vart að kynna enda hefur hún sungið og skemmt þjóðinni í rúm 30 ár af sinni alkunnu. Bjarni Töframaður hefur að sama skapi töfrað landann upp úr skónum og skemmt í fjölda ára við góðan orðstír þannig að við þurfum ekki mörg orð um hann. En hin unga Einar Örn þekkja færri og við spáum því (og þú last það fyrst hér;) að það muni svo sannarlega breytast hratt því að þessi knái og hæfileikaríki ungi herramaður er komin til að sjá og sigra. Og hann kemur ekki tómhentur upp á svið því að honum ber sú gæfa til að vera hvorki meira né minna en barnabarnabarn okkar eina sanna Ragga Bjarna! Og það er óhætt að fullyrða að afagenin hafa náð að hríslast niður ættartréð því að pilturinn er svo hressilega smitaður af hæfileikum og sviðsljóma að það er eins og okkar allra besti Raggi sé mættur aftur í sínum flotta jakka. 

Sérstakur heiðursgestur er söngkonan góðkunna Hjördis Geirs sem hefur sungið fyrir dansi og skemmt landanum í rúm 65 ár og er enn að á 82.aldursári.

Hljómsveit skipa þeir:

Björn Thoroddsen – hljómsveitarstjórn og gítar

Matti Kallio – Píanó og harmonikka

Jón Rafnsson – Bassi

Sigfús Óttarsson – Trommur

Hljóð og lýsing:

Sigurvald Ívar Helgason

Umsjón og utanumhald:

HB Músík 


Deildu þessum viðburði

23
ágú
Salurinn
06
sep
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

11
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
20
sep
Salurinn
04
okt
Salurinn
14
okt
Salurinn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

18
ágú
Bókasafn Kópavogs
18
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs
19
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
Bókasafn Kópavogs
21
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

23
ágú
Salurinn
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Salurinn

23
ágú
Salurinn
06
sep
Salurinn
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

11
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
12
sep
Salurinn
13
sep
19
sep
Salurinn
13
sep
Salurinn
20:00

GÁRUR

14
sep
Salurinn
17:00

ÞRÆÐIR

Sjá meira