„Allir eiga sér sögu. Öll búum við yfir kærleika og höfum upplifað ástir og sorgir, hamingju og gleði.“
Eyrún Ósk Jónsdóttir flytur ljóð úr ljóðabók sinni Úr svartnættinu miðju skín ljós við trommuundirleik Akeem Richards en hann spilar á afrískar trommur.
Öll ljóðin byggja á persónulegum frásögnum fólks. Verkið er seiðandi og áhrifamikið og fjallar um málefni samtímans. Gjörningurinn tekur um 20 mínútur.
Eyrún Ósk er rithöfundur, leikari og friðarsinni.
Akeem Richard er þekktur hér á landi fyrir störf sín í þágu fjölmenningar.
Verið öll hjartanlega velkomin.