„Söfn og umdeild saga: Að segja það sem ekki má segja í söfnum“
Árið 1844 veiddu Íslendingar síðustu geirfuglana og útrýmdu þar með tegundinni. Náttúrufræðistofa Kópavogs tekur þátt í alþjóðlega safnadeginum 2017 með því að vekja athygli á örlögum geirfuglsins. Hann var eitt sinn var útbreiddur við Norður-Atlantshaf, en laut endanlega í lægra haldi fyrir gegndarlausri ofveiði og söfnunaráráttu mannsins. Varpað er fram spurningum varðandi umgengni og viðhorf okkar til náttúrunnar nú á tímum, þegar framboð af upplýsingum hefur aldrei verið meira og aðgengi að þeim aldrei greiðara.