Áhrifavaldar æskunnar – barnabókin fyrr og nú

Hvaða barnabækur hafa haft áhrif á Íslendinga síðustu áratugina?
Sérstök barnabókasýning stendur yfir á aðalafni frá 8. febrúar til og með 28. mars.

Á sýningunni verður reynt að komast að því hvaða sögur hafa heillað börn í gegnum tíðina. Hvers konar sögur hafa fangað athygli ungra lesenda og hvers konar fyrirmyndir birtast í þeim? Hvernig voru uppáhaldsbækurnar þínar? Ævintýri eða raunsæi? Hvunndagsleg bernskubrek eða ógurlegar fantasíur? Leiddar verða saman bækur frá ólíkum tímum þar sem gestir geta rifjað upp gamlar minningar og séð hvað aðrar kynslóðir hafa lesið sér til yndis.
Sýningarstjóri er Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir vöruhönnuður.
Sýningin er hluti af viðburðaröðinni Barnabókin í 100 ár sem verður á aðalsafni Bókasafns Kópavogs í febrúar.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

24
apr
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

24
apr
Gerðarsafn
25
apr
Salurinn
25
apr
Bókasafn Kópavogs
25
apr
Gerðarsafn
26
apr
Salurinn
26
apr
Salurinn
26
apr
Salurinn
26
apr
Salurinn
27
apr
Bókasafn Kópavogs
27
apr
Salurinn
13:30

Anna Wielend

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR