Hönnuðir ÞYKJÓ verða staðarlistamenn í Kópavogi árið 2021 og munu á þeim tíma vinna að þverfaglegu rannsóknar- og hönnunarstarfi fyrir börn og fjölskyldur þeirra í samvinnu við Gerðarsafn, Salinn, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Bókasafn Kópavogs. ÞYKJÓ sérhæfir sig í búningum, innsetningum og listasmiðjum fyrir börn en innan vébanda hópsins eru barnamenningarhönnuður, textílhönnuður, búninga- og leikmyndahönnuður, arkitekt og klæðskerameistari.
„Hönnun ÞYKJÓ sprettur upp úr þverfaglegu samtali og hönnuðir í teyminu þrífast á því að grúska og gera tilraunir. Það er því mikill fengur fyrir okkur að komast í starfsumhverfi menningarstofnana í Kópavogi sem snýr einmitt að því að byggja brýr á milli ólíkra listgreina, fræða og vísinda. Fyrsta lína ÞYKJÓ, Ofurhetjur jarðar, er óður til töfra dýraríkisins annars vegar og leikgleði, ímyndunarafls ogsköpunarkrafts barna hins vegar, sem ákall um að hvort tveggja þurfi að vernda og varðveita“ segir Sigríður Sunna Reynisdóttir, leikmynda- og búningahönnuður í hönnunarverkefninu ÞYKJÓ.
Midpunkt er metnaðarfullt og framsækið listamannarými við Hamraborg, sem starfrækt hefur verið með fjölbreyttri og áhugaverðrisýninga- og viðburðadagskrá í rúmlega tvö ár af þeim Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnarðson og Snæbirni Brynjarssyni og skipað sér algera sérstöðu í innlendu listalífi.
„Midpunkt er mikilvægur vettvangur fyrir samtímalist af ýmsum toga og hefur það að markmiði að kynna nýjar, spennandi raddir, erlendalistamenn í bland við innlenda, upprennandi listamenn. Midpunkt hefur verið bakhjarl fyrir tvær menningarhátíðir í Hamraborg, og haldiðtónlistar-, sviðslista- og bókmennta-viðburði, auk myndlistasýninga á eins mánaðar fresti síðan staðurinn var opnaður í október 2018,“ segirSnæbjörn Brynjarsson hjá Midpunkt.
Aðrir sem fengu úthlutað úr Lista- og menningarsjóði Kópavogs voru eftirfarandi:
1.500.000 kr.
– Snorri Rafn Hallsson, Aðalbjörg Árnadóttir, Elísabet Jónsdóttir, Rannveig Bjarnadóttir fyrir Flanerí Kóp: Hljóðvapp um sögu og samtíma Kópavogs.
600.000 kr.
– Sólfinna fyrir Jazztónleikaröð Sunnu Gunnlaugsdóttur í Salnum.
– Aude Maina Anne Busson fyrir Manndýr, þátttökusviðslistaverk fyrir börn.
493.875 kr.
– Andrea Elín Vilhjálmsdóttir: Tveir viðburðir á vegum Plöntutíðar í Kópavogi
330.000 kr.
– Stílvopnið-valdefling og sk ehf fyrir Hetjuferðina í Bókasafni Kópavogs, ritlistasmiðjur fyrir ungmenni og eldri borgara.
300.000 kr.
– Ásgeir Jón Ásgeirsson fyrir þjóðlagasextett.
– Karlakór Kópavogs fyrir Kópavogstóna, sönglög með rætur í Kópavogi, útsett fyrir karlakór.
– Kvennakór Kópavogs fyrir vor- og jólatónleika.
– Samkór Kópavogs.
270.000 kr.
– Elísabet Waage og Laufey Sigurðardóttir fyrir fiðlu- og hörputónleika.
250.000 kr.
– Þórður Steingrímur Guðmundsson fyrir myndgreiningafundi á Héraðsskjalasafni Kópavogs.
– Dansgarðurinn fyrir tvær sýningar á The Mall eftir Sögu Sigurðardóttur í flutningi Forward í Smáralindinni.
150.000 kr.
– Wioleta Anna Ujazdowska fyrir blómaverk úr plasti unnið með grunnskólabörnum.
Að auki styrkir Lista- og menningarráð viðburðaraðir og hátíðir á vegum bæjarins svo sem viðburðaraðirnar Menning á miðvikudögum, Fjölskyldustundir á laugardögum, Vetrarhátíð og Safnanótt, Aðventuhátíð, Ljóðstaf Jóns úr Vör og fleira.