Náttúrufræðstofa hlýtur 12 milljóna kr. styrk

Allt frá árinu 2015 hefur Náttúrufræðistofa Kópavogs unnið að endurnýjun á grunnsýningum Náttúrufræðistofunnar. Safnasjóður hefur styrkt flestar þær framkvæmdir sem nú þegar hafa átt sér stað og veitir nú Náttúrufræðistofu öndvegisstyrk upp á tæpar 12 milljónir kr. Sá styrkur mun fjármagna lokahnykkinn í framkvæmdunum, sem er jafnframt dýrasti þátturinn.
Finnur Ingimarsson forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs er að vonum mjög ánægður með að nú geti þau loks lagt lokahönd á endurnýjun sýningarinnar. „Þetta hefur gerst í smáum og ígrunduðum skrefum og nokkuð hefur verið um hindranir í veginum. Fyrsta skrefið var stigið þegar grunnsýning á jarðfræði Íslands var opnuð árið 2017. Árið 2020, í febrúar, rétt á undan Covid-19 opnuðum við endurnýjaða grunnsýningu á líffræði Íslands, sem við köllum Heimkynni.“
Finnur og starfsfólk Náttúrustofu hafa um nokkurt skeið velt því fyrir sér að endurnýja sjó og ferskvatnsbúr í sýningunni. Ætlunin var að taka þau í gegn á síðasta ári en faraldurinn kom í veg fyrir það en þó er á áætlun að huga að þessu á árinu 2021. Einnig er í vinnslu leiðsagnarkerfi á ensku, og vonandi fleiri tungumálum, í gegnum sýningarnar sem byggir á notkun spjaldtölva.
„Lokahnykkurinn í þessari runu endurnýjunar, sem við vorum að fá styrk fyrir, er í raun inngangurinn að sýningum Náttúrufræðistofunnar.  Ætlunin er að útbúa sýningaratriði sem tengir saman jarð- og líffræði Íslands. Þar er rakin með gagnvirkum hætti tilvist landsins og myndunarsaga þess sem og ýmsir atburðir sem landið hefur gengið í gegnum þær ármilljónir sem það hefur verið til. Ísöld, eða aldir, hafa komið og farið og fylgt verður eftir landnámi valinna dýra- og plöntutegunda eftir að þeirri síðustu lauk,“ segir Finnur og vill að lokum þakka Safnasjóði fyrir þeirra framlög í gegnum árin.
 

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Salurinn
11
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

13
júl
Menning í Kópavogi
14
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
16
júl
Bókasafn Kópavogs
16
júl
Bókasafn Kópavogs
17
júl
Salurinn
Mynd: Saga Sig

Sjá meira