Bæjarlistamaður Kópavogs 2021

Jazzpíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir er Bæjarlistamaður Kópavogs 2021.

Valið var tilkynnt í Salnum í dag, föstudaginn 21 maí.  Karen Elísabet Halldórsdóttir formaður lista- og menningarráðs kynnti tilnefninguna að viðstöddum Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra Kópavogs.

„Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar er hreykið af þessari niðurstöðu. Sunna Gunnlaugsdóttir er frábær tónlistarkona sem á farsælan feril að baki erlendis og hér heima og hefur átt sinn þátt í að byggja upp blómlegt tónlistarlíf Kópavogsbæjar, meðal annars með tónlistarhátíðinni Jazz í Salnum. Við hlökkum til samstarfsins með henni næsta árið.“sagði Karen Elísabet Halldórsdóttir formaður lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar um valið á bæjarlistamanni 2021.

Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn til að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi. Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.  Sunna Gunnlaugsdóttir tekur við keflinu af Herra Hnetusmjöri tónlistarmanni.


Nánar um Sunnu Gunnlaugsdóttur

Sunna Gunnlaugsdóttir jazzpíanisti hefur hvarvetna hlotið mikið lof fyrir tónlist sína allt frá því fyrsta plata hennar Mindful var valin á meðal 10 bestu diska ársins af blaðinu Virginian Pilot árið 2000. Hún hefur haldið tónleika um víða veröld og komið fram á mörgum af helstu jazztónlistarhátíðum heims. 

Sunna hefur sent frá sér 11 geisladiska sem hafa hlotið frábærar viðtökur hér heima og erlendis og náð inn í efstu sæti vinsældalista á jazzútvarpsstöðvum í Bandaríkjunum og Kanada.  Sunna hefur hlotið fjölda tilnefninga til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valin flytjandi ársins 2015 og 2019. Tríó hennar með Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Scott McLemore á trommur, sem hefur notið mikillar hylli, var Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013 og á meðal fulltrúa Íslands á Nordic Cool hátíðinni í Kennedy Center í Bandaríkjunum. 

Sunna er fædd 1970 í Reykjavík en er stoltur Kópavogsbúi í dag. Hún hefur margoft komið fram í Salnum í Kópavogi og er stofnandi tónlistarhátíðarinnar Jazz í Salnum. Hún nam jazzpíanóleik við Tónlistarskóla FÍH, William Paterson College í New Jersey og Pratt University í New York þaðan sem hún lauk mastersprófi. Sunna sat í stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur í fimm ár og situr í stjórn Europe Jazz Network.

Sunna Gunnlaugsdóttir sagði af þessu tilefni: „Það er varla hægt að koma í orð hversu mikil hvatning þessi viðurkenning frá Kópavogsbæ er á þessum undarlegu tímum. Það er skrítið að vera listamaður á tíma þegar ekkert má og oft erfitt að finna innblásturinn til að skella sér í skapandi verkefni. Ég fann fyrir ótrúlegu þakklæti við þessar fréttir og það er ómetanlegt að finna það að aðrir hafi kunnað að meta mitt framlag undanfarin ár. Ég hlakka mjög til að starfa að nýju verkefni sérstaklega hannað fyrir Kópavogsbúa. Takk innilega fyrir viðurkenninguna.“

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

16
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

17
apr
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

17
apr
Bókasafn Kópavogs
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

17
apr
Náttúrufræðistofa Kópavogs
12:15

Hvað er mold?

18
apr
Bókasafn Kópavogs
17:00

Íslenskar lækningajurtir

18
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Holl fæða

19
apr
Salurinn
20:00

KLARA ELÍAS

20
apr
Gerðarsafn
13:00

Together | Palestínsk útsaumssmiðja

21
apr
Salurinn
13:30

Ljóðrænn og kraftmikill er saxófónninn

23
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

24
apr
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

24
apr
Gerðarsafn
12:15

Sjálfsmyndir og minningar

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR