Mállýskur skógarþrasta á höfuðborgarsvæðinu

Komið hefur í ljós að skógarþrestir hafa svæðisbundnar mállýskur og syngja þannig mismunandi lög á mismunandi svæðum. Hægt er að heyra um 20 mismunandi mállýskur skógarþrasta víðsvegar á Höfuðborgarsvæðinu. Skógarþrestirnir hafa þannig sín eigin hverfi og póstnúmer í borginni með einkennandi söng í hverju hverfi. Inni í borginni okkar er því að finna aðra borg; ósýnilega stórborg skógarþrasta þar sem hver fugl keppist við að syngja sína bestu sumarsöngva.
Hlynur Steinsson, meistaranemi í líffræði við Háskóla Íslands, hefur í sumar unnið að rannsóknum á menningarlandslagi skógarþrasta á Höfuðborgarsvæðinu á vegum Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi. Hann fór út með hljóðnema í vor og tók upp þrastasöng víðsvegar á Höfuðborgarsvæðinu og frá 12. júlí verður opin sýning á Náttúrufræðistofu Kópavogs um fjölbreytileika í sönglífi skógarþrasta. Þar má koma sér vel fyrir í mjúkum sófa og hlusta á tóndæmi af öllum helstu mállýskum skógarþrasta á Höfuðborgarsvæðinu. Sýningin mun standa fram í lok ágúst.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

27
apr
Bókasafn Kópavogs
27
apr
Salurinn
13:30

Anna Wielend

27
apr
Salurinn
27
apr
Salurinn
27
apr
Salurinn
28
apr
Bókasafn Kópavogs
28
apr
Salurinn
28
apr
Salurinn
28
apr
Salurinn
29
apr
Bókasafn Kópavogs
29
apr
Bókasafn Kópavogs
29
apr
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR