Króníkan opnar í Gerðarsafni

Nýr veitingastaður opnar í Gerðarsafni.

Veitingastaðurinn Króníkan opnar í Gerðarsafni innan tíðar en samningur við nýjan rekstraraðila var undirritaður í dag, 11.maí á afmælisdegi Kópavogsbæjar.

Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir, systkini úr Vesturbæ Kópavogs, hafa tekið reksturinn að sér en þau hafa bæði mikla reynslu úr veitingageiranum.

Bragi sem eigandi og rekstraraðili meðal annars Veðurs, Vínstúkunnar 10 sopar og Brút. Sigrún hefur meðal annars unnið á Bergsson mathús. Áherslan á nýja staðnum, Króníkunni, verður á smörrebröd, rammíslenskar kaffiveitingar, góð vín, bjór og ákavíti.

„Við erum mjög spennt fyrir að taka við rekstri í hinum eina sanna miðbæ Kópavogs, þetta eru okkar slóðir og við hlökkum mikið til taka á móti gestum,“ segja Bragi og Sigrún.

Króníkan verður til að byrja með opin alla daga frá klukkan 12.00 – 19.00 og er stefnt að opnun í júní.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir mjög kærkomið að fá veitingastað í Gerðarsafn. „Króníkan verður frábær viðbót við starfsemi menningarhúsanna sem ég er sannfærð um að bæjarbúar og aðrir eiga eftir að taka opnum örmum.“

Á myndinni eru frá vinstri: Bragi Skaftason  og Sigrún Skaftadóttir frá Króníkunni, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Brynja Sveinsdóttir, safnstjóri Gerðarsafns og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála hjá Kópavogsbæ.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

09
feb
Bókasafn Kópavogs
10
feb
Bókasafn Kópavogs
11
feb
Bókasafn Kópavogs
11
feb
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
feb
Bókasafn Kópavogs
12
feb
Bókasafn Kópavogs
12
feb
Bókasafn Kópavogs
10:00

Holl fæða

13
feb
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

14
feb
Bókasafn Kópavogs
14
feb
Bókasafn Kópavogs
15
feb
Salurinn
16
feb
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR