17. júní í Kópavogi

Hátíðarhöld á Rútstúni, við Salalaug og við menningarhúsin.

17. júní verður fagnaði í Kópavogi á Rútstúni og við Salalaug með glæsilegri hátíðardagskrá.

Hátíðarhöldin hefjast kl. 13.30 með skrúðgöngu frá Menntaskólanum í Kópavogi að Rútstúni með Skólahljómsveit Kópavogs og Skátana í broddi fylkingar.

Landsþekktir skemmtikraftar og tónlistarfólk stíga á stokk á hátíðarsvæðunum á Rútstúni og við Salalaug þar sem meðal annars koma fram Bríet, Friðrik Dór, Gunni og Felix, Eyrdís og Halaldur úr Draumaþjófnum, Saga Garðars og Snorri Helga, Eva Ruza og Hjálmar Örn ásamt fleirum góðum gestum.

Tívolítæki og hoppukastalar eru hluti af þeirri skemmtun sem boðið verður uppá á hátíðarsvæðunum tveimur og eru þau gestum að kostnaðarlausu eins og undanfarin ár. Þá gefst krökkum tækifæri á að prófa veltibílinn sem staðsettur verður við Sundlaug Kópavogs.

Þá verður Sirkus, húllahopp, andlitsmálning og hægt að fara á hestbak við menningarhúsin í Kópavogi.

Að venju  verður 17. júní hlaup í umsjá Frjálsíþróttadeild Breiðabliks um morguninn sem hefst klukkan 10.00, ætlað börnum í 1.-6. bekk, þar sem allir fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna.

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur þjóðhátíðardeginum.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

13
jún
15
jún
Menning í Kópavogi
19:30

Flokkstjórinn 2023

14
jún
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

14
jún
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sumarlestrargleði með Gunnari Helgasyni

15
jún
Salurinn
17:00

Marína Ósk

17
jún
Menning í Kópavogi
13:30

17. júní

21
jún
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

22
jún
Salurinn
17:00

Tríó Jóns Árnasonar

28
jún
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

05
júl
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

12
júl
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

19
júl
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

26
júl
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR