Nýr kynningar- og markaðsstjóri

Vigdís Másdóttir hefur verið ráðin kynningar- og markaðsstjóri menningarmála í Kópavogi en hún var valin úr hópi 120 umsækjenda um starfið.  Vigdís tekur við starfi Írisar Maríu Stefánsdóttur sem nú rær á önnur mið eftir farsæl ár í starfi.

Vigdís starfaði síðast sem kynningarstjóri Listaháskóla Íslands þar sem hún stýrði öllu kynningar-, markaðs-, og viðburðastarfi skólans og fór fyrir teymi verkefnastjóra þvert á skólann og deilda innan hans.

Vigdís hefur áralanga reynslu í viðburðahaldi auk þess sem hún hefur unnið að fjölbreyttum markaðstengdum verkefnum. Vigdís er með meistaragráðu í listkennslu og leikarapróf frá Listaháskóla Íslands.

Vigdís hefur nú þegar hafið störf hjá Kópavogsbæ og bjóðum við hana hjartanlega velkomna til starfa.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

13
júl
Menning í Kópavogi
14
júl
Bókasafn Kópavogs
15
júl
Bókasafn Kópavogs
16
júl
Bókasafn Kópavogs
16
júl
Bókasafn Kópavogs
17
júl
Salurinn
Mynd: Saga Sig
18
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
júl
Bókasafn Kópavogs
22
júl
Bókasafn Kópavogs
23
júl
Bókasafn Kópavogs
23
júl
Bókasafn Kópavogs
23
júl
Gerðarsafn

Sjá meira