Daltún 1 er Jólahús Kópavogsbæjar

Lista- og menningarráð Kópavogs stóð í ár í annað sinn fyrir leitinni að Jólahúsi Kópavogs. Að þessu sinni voru einnig valdar Jólagata og Fjölbýlishús ársins.

Þetta er svo skemmtilegt, það er svo dýrmætt að sjá alla þessa ljósadýrð á þessum myrkasta tíma ársins, segir Elísabet Sveinsdóttir forseti Lista- og menningarráðs Kópavogs. Þetta er annað árið sem við förum af stað með þessa nafnbót, mikilvægt að lyfta upp því sem vel er gert og svo nærir þetta jólaandan. 

Dómnefnd dæmdi út frá; samhengi við umhverfið, birtu og jólafíling/stemmingu.

Jólahús Kópavogs 2023

Daltún 1

Umsögn dómnefndar:

Falleg kyrrð í ljósdýrðinni, umhverfið hjálpar vissulega til með þessum fallegu trjám sem umliggja húsið. Einföld litasamsetningin sveipar ákveðnum töfrablæ yfir húsið allt um kring. 

Elísabet Berglind Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar og Hjörtur Eiríksson, jólahúsaeigandi.

Jólagata Kópavogs 2023

Múlalindin 

Umsögn dómnefndar

Það er nú ekki annað hægt en að komast í jólaskap þegar keyrt/gengið er inn í Múlalindina. Fyrstu tvö húsin er einstaklega vel og mikið skreytt, þau setja tóninn fyrir alla götuna sem sú jólalegasta í Kópavogi þetta árið.

Jólafjölbýlishús Kópavogs 2023

Sunnusmári 22 – 28

Umsögn dómnefndar:

Mjög fallegt að sjá hversu samtaka nágrannarnir í Sunnusmáranum eru, það hafa allir sett eins seríu og verður heildarútkoman því einstaklega falleg. Birtan/bjarminn frá húsinu sést langar leiðir og verður fallegri því nær maður kemur að húsinu.  

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

02
júl
Bókasafn Kópavogs
02
júl
Bókasafn Kópavogs
03
júl
Salurinn
04
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

05
júl
Gerðarsafn
07
júl
Bókasafn Kópavogs
08
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
09
júl
Bókasafn Kópavogs
10
júl
Salurinn
11
júl
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

13
júl
Menning í Kópavogi

Sjá meira