Litrík Vetrarhátíð í Kópavogi

Lýsum upp skammdegið

Forvitnileg og fjörug dagskrá verður á Vetrarhátíð í Kópavogi en hátíðin samanstendur af Safnanótt, Sundlaugakvöldi og ljósalist ásamt ótal viðburðum og sýningum þar sem fjöldi listafólks tekur þátt í að skapa rafmagnað andrúmsloft í Kópavogi.

Sviðsmyndir

Líkt og undanfarin ár verður Kópavogskirkja lýst upp með nýju ljóslistaverki á Vetrarhátíð. Í ár var myndlistarmaðurinn Eygló Harðardóttir fengin til að gera verk í samtali við form Kópavogskirkju og kirkjuglugga Gerðar Helgadóttur.

Eygló Harðardóttir er í framvarðarsveit íslenskra myndlistarmanna en hún hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2019. Nýtt verk Eyglóar, Sviðsmyndir, er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju. Það er byggt upp af fimm sviðsmyndum sem voru lýstar upp og kvikmyndaðar. Verkinu verður varpað á kirkjuna föstudags- og laugardagskvöldið 2. og 3. febrúar, frá 18:30 – 24:00, bæði kvöldin.

Silent diskó og spádrottning á Bókasafni

Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Bókasafni Kópavogs á Safnanótt. Má þar nefna ljóðatrommugjörning með þeim Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Akeem Richards kl. 18, notalega síðkvöldstónleika með stórsöngkonunni Margréti Eir kl. 21 og áhugaverða kvöldstund með rithöfundunum Friðgeiri Einarssyni og Braga Páli Sigurðssyni. Auk þess mun dansinn duna á Bókasafni Kópavogs í Silent diskó frá 19 – 22 og hin óviðjafnanlega Sigga Kling verður á vappi með kristalskúluna frá 21 – 23.

Miðausturlensk sveifla í Salnum á Safnanótt

Líbanska söngkonan Fairuz er dýrkuð og dáð víða um heim og hefur hrifið hjörtu margra kynslóða í Miðausturlöndum með ljóðrænum textum og tímalausum melódíum.

Á Safnanótt, 2. febrúar klukkan 20, fara fram tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem hrífandi tónlist Fairuz hljómar í flutningi einvala hóps tónlistarfólks og gestasöngvara en hljómsveitina skipa Thabit Lakh, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Alexandra Kjeld, Ásgeir Ásgeirsson, Birgir Bragason, Kristofer Rodriquez Svönuson og Erik Quick.
Ókeypis er á tónleikana og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Sjaldgæft tækifæri til að skoða varðveislurými Gerðarsafns

Í Gerðarsafni standa yfir sýningarnar MOLTA, Venjulegir staðir og GERÐUR grunnsýning en ókeypis er á allar sýningar á Safnanótt, 2. febrúar. Boðið verður upp á listamannaleiðsögn um Venjulega staði með þeim Haraldi Jónssyni og Joe Keys klukkan 18 á Safnanótt og síðar sama kvöld, klukkan 21:30 mun Cecilie Cedet Gaihede bjóða upp á leiðsögn um safneign Gerðarsafns.

Hægt verður að fá innsýn í MOLTU, en um er að ræða alltumlykjandi og þverfaglega innsetningu Rósu Ómarsdóttur. Nemendur við samtímadansbraut LHÍ munu sýna dans, innblásinn úr MOLTU, inni í innsetningunni á milli 20 og 21. Rósa mun veita leiðsögn um innsetninguna frá 21 – 23.

Stjörnuskoðun með Sævari Helga

Sævar Helgi Bragason býður upp á stjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna klukkan 19 – 20 á Safnanótt en viðburðurinn fer fram við Náttúrufræðistofu Kópavogs, ef veður leyfir.

Fjölskyldan getur einnig sameinast í yndislegu náttúrubingói um Borgarholtið og skilað niðurstöðum inn í Gerðarsafn.  Dregið verður úr nöfnum þátttakenda að Vetrarhátíð lokinni og heppnir þátttakendur fá fallega bókagjöf í verðlaun.

Baráttulúðrar í Hljóðabókasafni

Hljóðbókasafn Íslands verður með lifandi dagskrá og opið hús frá 18 – 22 en á meðal þess sem þar verður boðið upp á er tónlistaratriði með hinni frábæru Lúðrasveit verkalýðsins klukkan 19:30 auk þess sem dansarar úr Klassíska listdansskólanum bjóða upp á nýtt og spennandi dansverk inni í rými safnsins klukkan 20:30.

Y-gallerý verður með sýningaropnun klukkan 17 – 19 á Safnanótt, föstudaginn 2. febrúar en þar sýnir Bjarni Þór Pétursson ný verk. Í Molanum verður boðið upp á spennandi dagskrá þar sem tónlistarfólk, uppistandarar, dansarar og myndlistarmenn stíga á svið. Dagskráin verður frá 21 – 23.

Fjölmargt annað verður í boði á Vetrarhátíð í Kópavogi í ár en dagskrána er hægt að nálgast hér.

 

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

30
apr
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

30
apr
02
maí
Menning í Kópavogi

Logar í skýjum

01
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

02
maí
Bókasafn Kópavogs
15:00

Lesið á milli línanna

04
maí
Bókasafn Kópavogs
11:30

Lesið fyrir hunda

04
maí
Salurinn
14:00

Herra Hnetusmjör

04
maí
Menning í Kópavogi
13:00

Dr. Bæk í Kópavogi

06
maí
11
maí
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

07
maí
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

08
maí
Bókasafn Kópavogs
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

08
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

08
maí
Menning í Kópavogi
12:15

Kársnes. Úr ræktarlandi í nútímabyggð

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR