Bæjarlistamaður Kópavogs 2024

Slagverksleikarinn og tónskáldið Kristofer Rodríguez Svönuson  er bæjarlistamaður Kópavogs 2024. 

Valið var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Salnum í dag, föstudaginn 24. maí. Elísabet Berglind Sveinsdóttir, formaður lista- og menningarráðs tilkynnti valið og sagði í ávarpi sínu að lista-og menningaráð hefði verið einróma um tilnefninguna. Líkt og áður bárust lista- og menningarráði fjölmargar ábendingar og umsóknir um Bæjarlistamann Kópavogs, sem sýnir vel hversu gróskumikill menningarbær Kópavogur er og hversu mikið af  öflugu listafólki býr þar.

Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, Kristófer Rodrígues Svönuson, bæjarlistamaður 2024 og Elísabet Berglind Sveinsdóttir, formaður lista- og menningarráðs.

Happafengur fyrir Kópavogsbúa

Elísabet Sveinsdóttir formaður lista- og menningarráðs segir að Kópavogsbúar geti farið að hlakka til að njóta, læra og takk þátt í tónlistarsköpun þessa hæfileikaríka bæjarlistamanns.  „Við erum mjög spennt að sjá hvað hann gerir hér í Kópavogi á komandi ári. Kristofer hefur átt glæsilegan feril og það verður virkilega gaman að sjá hvernig hann mun vinna með menningarhúsunum og ungmennahúsinu Molanum og ljóst að hann er mikill happafengur fyrir okkur Kópavogsbúa“, segir Elísabet.

Starfað með mörgu af helsta tónlistarfólki Íslands

Kristofer Rodríguez Svönuson er slagverksleikari og tónskáld af íslenskum og kólumbískum uppruna. Hann er fæddur árið 1988 og ólst upp í Kópavogi þar sem hann býr enn í dag. Árið 2014 útskrifaðist Kristofer úr FÍH. Fyrir hönd skólans tók hann þátt í ýmsum verkefnum bæði innanlands og erlendis og ber þar helst að nefna þátttöku í Young Nordic Jazz Comets með hljómsveitinni Two Beat Dogs og verðlaun á Nótunni 2013 með hljómsveitinni Gaukshreiðrið.

Kristofer lagði stund á slagverksnám á Kúbu undir leiðsögn David Lopez og í Kolumbíu undir leiðsögn Fabio Ortiz sem er af mörgum talinn fremsti slagverksleikari Suður-Ameríku um þessar mundir. Kristoferr hefur starfað með mörgu af helsta tónlistarfólki Íslands í jazz, heimstónlist og poppi og ber þar helst að nefna Mugison, KK, Hjálma, Cell7, Júníus Meyvant, Los Bomboneros, Lay Low, Tómas R. Einarsson, Stuðmenn, Sunnu Gunnlaugsdóttur, Skuggamyndir Frá Býsans, Ragnheiði Gröndal, SJS Big Band, Sigríði Thorlacius, Berndsen, Kristjönu Stefánsdóttur, Stórsveit Reykjavíkur, Kira Kira, Ingibjörgu Turchi og Soffíu Björg.

Kristofer hefur einnig spilað með erlendu tónlistarfólki og tónskáldum á borð við Jack Steadman (Bombay Bicycle Club) og Nighmares On Wax. Kristofer hefur samið og gefið út tónlist einn og með öðru samferðarfólki sínu.  Árið 2019 gaf hann út sýna fyrstu plötu Primo, sem gefin var út af Lucky Records og var platan tilnefnd sem plata ársins í opnum flokki á íslensku tónlistarverðlaununum. Um þessar mundir er Kristofer að vinna að nýrri plötu.

Viðurkenning sem hvetur og skapar nýjar forsendur

Kristofer Rodríguez segir það mikinn heiður og öfluga hvatningu að fá þessa viðurkenningu frá Kópavogsbæ. „Ég er svo lánsamur að vera umkringdur frábæru tónlistarfólki sem ég hef fengið að rannsaka tónlist með. Þessi viðurkenning hvetur og skapar nýjar forsendur til frekari rannsókna með góðu fólki sem íbúar Kópavogs geta vonandi notið góðs af. Ég hyggst spila og kynna fjölbreytta heimstónlist í Kópavogi með ólíku tónlistarfólki, halda námskeið og smiðjur og kynna slagverkshljóðfærið“, segir hinn nýi bæjarlistamaður Kópavogs.

Ljósmyndari: Leifur Wilberg Orrason

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

08
sep
Salurinn
15:00

Svanasöngur Schuberts

09
sep
Bókasafn Kópavogs
13:00

Sófaspjall um andleg mál

10
sep
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

11
sep
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

11
sep
Menning í Kópavogi
17:00

Pönkganga með dr. Gunna

12
sep
Salurinn

Tvíhöfði | Af fingrum fram í 15 ár

14
sep
Salurinn
20:30

Himinn & jörð

14
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Tala og spila

14
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
13:00

Haustkórónur með ÞYKJÓ

16
sep
Bókasafn Kópavogs
13:00

Sófaspjall um andleg mál

17
sep
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

18
sep
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR