Aðalsafn bókasafnsins og Náttúrusafn lokuð 5.-19. janúar

Aðalsafn Bókasafns Kópavogs í Hamraborg og Náttúrusafn verða lokuð dagana 5. til 19. janúar næstkomandi. Skipta á út gólfefnum í húsinu og ekki er unnt að hafa opið fyrir gesti á meðan á því stendur.

Síðustu opnunardagar fyrir framkvæmdir verða 2. janúar kl. 8-18 og 3. janúar kl. 11-17. Við hvetjum bókþyrsta til að kíkja við á bókasafnið og ná sér í góðan stafla á náttborðið meðan færi gefst!

Lindasafn stendur vaktina á meðan ásamt Bókaboxinu í Vallakór þar sem hefðbundnir opnunartímar gilda.

Skil á bókum
Allir skiladagar hafa verið færðir svo engar bækur frá aðalsafni safna sektum yfir lokunartímabilið og við biðlum til lánþega að hafa bækurnar heima ef kostur er. Heimilt verður þó að skila bókum á aðalsafn í anddyrið á 1. hæð (jarðhæð) á virkum dögum frá kl. 10-16. Þá má auðvitað skila á Lindasafni, í Bókaboxið, Hafnarfjörð og Garðabæ líkt og endranær en við áréttum að enginn flýtir er á skilum á bókum frá aðalsafni.

Ósóttar frátektir er hægt að sækja í anddyrið á 1. hæð á virkum dögum kl. 10-16.

Viðburðir bókasafnsins á tímabilinu færast ýmist á Lindasafn, Gerðarsafn eða Salinn og má fá upplýsingar um það við hvern viðburð á viðburðasíðu safnsins.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda en hlökkum til að taka á móti ykkur að framkvæmdum loknum.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

03
jún
Bókasafn Kópavogs
03
jún
Bókasafn Kópavogs
03
jún
Bókasafn Kópavogs
04
jún
Salurinn
06
jún
Gerðarsafn
07
jún
Salurinn
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
10
jún
Bókasafn Kópavogs
11
jún
Salurinn
17
jún
Bókasafn Kópavogs
17
jún
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR