Hagverur
Hagveran er rökrétt útgáfa af manneskjunni, sú sem skoðar möguleikana sem eru fyrir hendi og tekur ákvarðanir í þágu skilvirkni og gróða. Hugmyndir eru metnar út frá hagkvæmni og athafnir eru ekki réttlætanlegar nema þær skili hagnaði. Á undanförnum árum hefur verðið á gulli fimmfaldast. Hagveran leitar árþúsundir aftur í tímann, í málm sem glóir og hvorki ryðgar né tærist, í grunnefnin, í höfuðskepnurnar. Gullgerðarmenn sáu gull sem hreinasta form jarðar, og litu svo á að allir málmar yrðu að gulli með tímanum. Þeir nýttu allar höfuðskepnurnar til að framleiða gull. Jörðin var undirstaðan eða líkaminn. Eldurinn var notaður til að hreinsa og líkja eftir hitanum í iðrum jarðar. Vatninu var ætlað að færa efnið aftur í frumefni svo að það gæti endurskapast sem gull. Loftinu var síðan ætlað að hreinsa efnið og gæða það anda. Gullgerðarmenn nútímans virðast gleyma síðasta skrefinu; hagveran þekkir ekki andann.
Sýningin Hagverur leiðir saman myndlistarmennina Sigurð Ámundason og Jóhannes Atla Hinriksson. Það sem þeir eiga sameiginlegt er óþrjótandi vinna við að finna list sinni farveg í gegnum hvaða efni og form sem er. Sigurður sýnir jafnt gjörninga og leikrit, videoverk og teikningar og Jóhannes bæði tvívíð og þrívíð verk unnin úr margvíslegum efnum.
Homo Economicus
Homo Economicus is the rational version of Homo Sapiens, one who evaluates the possibilities at hand and makes decisions based on utility and profit. Ideas are assessed for efficiency and are only deemed justifiable if they yield profit. In recent years, the price of gold has increased fivefold. Homo Economicus looks back thousands of years, to a metal that glows and neither rusts nor corrodes, to the basic materials, the four elements. Alchemists viewed gold as the purest form of earth, and believed that all metals would eventually transform into gold over time. They utilised the four elements to produce gold. Earth represented physical matter, the body. Fire was used to purify and replicate the heat at the center of the Earth. Water was intended to return matter to its elemental form so it could be recreated as gold. Air was then intended to infuse the metal with spirit. Modern alchemists seem to have overlooked the last step; Homo Economicus does not acknowledge the spirit.
The exhibition brings together visual artists Sigurður Ámundason and Jóhannes Atli Hinriksson. They both share a tireless dedication to shaping their ideas into any medium. Sigurður exhibits both performances and theatre, video based work and large scale drawings while Jóhannes works both in two-dimensional and three-dimensional forms in a variety of materials.











