Frískápur opnar við aðalsafn bókasafnsins

Bókasafn Kópavogs hefur opnað frískáp (e. freedge) við aðalsafn sitt í Hamraborginni. Skápurinn opnaði við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 21. apríl. Skápurinn er staðsettur sunnan við safnið, hjá undirgöngunum sem liggja undir Borgarholtsbraut.

Tímasetningin er engin tilviljun, því þessa vikuna fagnar bókasafnið Viku 17 sem er alþjóðleg vika Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna á bókasöfnum. Kópavogsbær hefur einnig innleitt Heimsmarkmiðin í stefnu Kópavogsbæjar.

Hlynur Steinsson, líffræðingur á Náttúrusafni Kópavogs, hélt áhugavert erindi um gámadýfingar við opnunina, þar sem hann útskýrði hugtakið, gaf áhorfendum góð ráð og ljóstraði meira að segja upp um sinn uppáhalds gám. Gámadýfingar eiga það sameiginlegt með frískápnum að vera umhverfisvænar og hafa það markmið að draga úr matarsóun.

Eftir frábært erindi Hlyns fór hópurinn út þar sem klippt var á borðann og frískápurinn er því opinn og kominn í notkun. Fólk er hvatt til þess að nýta skápinn og vonast er til að þarna verði fjörugt og öflugt samfélag sem nýtir skápinn vel.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

06
nóv
Gerðarsafn
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
07
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
07
nóv
Salurinn
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
08
nóv
Salurinn
09
nóv
Bókasafn Kópavogs
10
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira