Heimar hafa lokið að fara yfir hugmyndir sem bárust í samkeppni um hönnun nýrrar menningarmiðstöðvar í Smáralind. Að loknu mati á innsendum tillögum varð tillaga BASALT arkitekta valin til áframhaldandi þróunar verkefnisins.
„Við mat á tillögunum var lögð áhersla á hugmyndafræði, aðgengi, flæði, sveigjanleika og notagildi. Einnig var horft til hagkvæmni, framkvæmdarhæfni, sjálfbærni og nýtingar á núverandi innviðum, sem og samspils Smáralindar við öflugt menningarstarf Kópavogsbæjar. Niðurstaðan er sú að tillaga BASALT veitir skýran og traustan grundvöll fyrir næstu skref í hönnun og undirbúningi verkefnisins,“ segir í fréttatilkynningu Heima.
Fyrirhuguð menningarmiðstöð verður staðsett í um 900 m² rými í austurhluta Smáralindar og er henni ætlað að verða opið og lifandi rými sem sameinar bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði fyrir fjölbreyttan hóp notenda.
Tilkynnt var um samning Kópavogsbæjar og Heima hf.um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind í mars síðastliðnum.
Verkefnið er þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima en um framsýna hugsun er að ræða á sviði menningarmála þar sem fléttast saman nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu. Þá er verkefnið liður í áframhaldandi þróun Smáralindar sem öflugs áfangastaðar fyrir verslun, þjónustu, menningu og afþreyingu.
Stefnt er að því að menningarmiðstöðin verði opnuð vorið 2027.
Nánar um uppbyggingu í Smáralind












