Krakkahátíð – hvað er nú það?

Vigdís Jakobsdóttir, viðburðastjóri menningarmála, kemur inn með ferska og djarfa sýn á barnamenningu. Krakkahátíðin Kópurinn lítur dagsins ljós þann 9. maí næstkomandi og við spurðum hana hvers við mættum vænta.

Krakkahátíðin Kópurinn, nýjar áherslur og með nýjum brag, hvað getur þú sagt okkur um hátíðina?

Við ákváðum að fríska aðeins upp á Barnamenningarhátíð í Kópavogi og gefa henni aðeins meiri sérstöðu. Hátíðin fékk nýtt og glaðlegra nafn: Krakkahátíðin Kópurinn, og við leggjum jafnvel enn meiri áherslu á það en fyrr að fá hágæða listviðburði til okkar sem fagfólk hefur unnið fyrir börn sérstaklega. Því miður er framboð af list fyrir börn af skornum skammti á Íslandi og það er mikilvægt að styðja vel við það listafólk sem gefur sig að þessum mikilvæga áhorfendahópi.

Mikið af flottri sviðslist verður í boði á hátíðinni: heimsklassa brúðuleikhús, dans, sirkus og götuleikhús. Tónlistin fær auðvitað sitt pláss og síðasta klukkutímann geta krakkarnir sjálf tekið lagið í krakkakarókí í Salnum sem verður í umsjón Söndru Barilli (sem krakkarnir þekkja mörg sem Mollý úr Ice Guys þáttunum). Fyrir þau sem vilja sjálf taka virkan þátt er líka í boði sirkussmiðja, danssmiðja, brúðugerð og töskuskartsmiðja. Allt er þetta í boði fyrir stóra sem smáa.

Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og margir af viðburðunum eru ekki háðir tungumáli. Þeir ættu því að henta mjög breiðum hópi. Ég á mér enga ósk heitari en að alls konar fjölskyldur komi til að njóta með okkur laugardaginn 9. maí. Svæðið í kringum menningarhúsin er líka svo góður staður til að koma að hanga á og leika sér. Þar er hoppubelgur, leiktæki og gosbrunnur meira að segja!

Svo er gaman að geta þess að sirkussýningin Shjówmenn er þessa dagana sýnd í nokkrum skólum í efri byggðum Kópavogs, sem er hluti af Krakkahátíðinni Kópnum líka.

Halldór Baldursson, skopmyndateiknari með meiru, á heiðurinn af þessum listelskandi Kóp. Hvaðan kom hugmyndin að vinna með Halldóri og hugmyndin að Kópnum sem karakter?

Halldór er flestum kunnur sem skopmyndateiknari en hann er líka myndhöfundur ótal margra barnabóka. Þegar kom að því að velja teiknara til að útfæra kópinn listelskandi kom einfaldlega enginn annar til greina. Við vildum að kópurinn hefði karakter og væri svolítið óútreiknanlegur, jafnvel stríðinn. Kópurinn er kokhraustur og sannfærður um að hann sé meiri listaspíra en Raggi Kjartans, syngi betur en Bríet og að enginn standist honum snúning á dansgólfinu. Mér finnst Halldóri hafa tekist að ná þessu öllu fram í þessari sterku týpu sem hann teiknaði fyrir okkur.

Á hátíðinni ætlum við að kalla eftir hugmynd að nafni á kópinn og vera með nafnasamkeppni. Þannig að það er um að gera að fara að leggja höfuðið í bleyti!

Hvernig sérðu hátíðina fyrir þér þróast?

Ég vona að þessi hátíð geti til lengri tíma litið lagt lóð á vogarskálar þess að efla og auka framboð lista í augnhæð við unga áhorfendur og að hún geti jafnvel verið hvatning til nýsköpunar á þessu sviði. Börnin okkar eiga það skilið.

Við hverju má fólk búast á laugardaginn?
Bleikum flamingóum, fljúgandi sjómönnum, tröllum, dansandi kónguló, dúndrandi danstónlist og svöngum (en voða litlum) úlfi! Og þá er fátt eitt talið. Sjón er sögu ríkari.

Við hvetjum alla krakka til þess að koma með fjölskylduna með sér og upplifa hágæða list ætlaða þeim þann 9. maí milli kl. 12 og 16. Smelltu hér til þess að sjá alla viðburðina.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

30
apr
Bókasafn Kópavogs
30
apr
Bókasafn Kópavogs
01
maí
Salurinn
02
maí
Bókasafn Kópavogs
02
maí
Bókasafn Kópavogs
02
maí
Náttúrusafn Kópavogs
12:00

Fjöruferð

03
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
03
maí
Salurinn
04
maí
Bókasafn Kópavogs
04
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR