Sumarnámskeið: Menningarkrakkar 6-9 ára

Gerðarsafn býður upp á tvö námskeið í sumar fyrir 6-9 ára börn. Skráning er hafin á Abler ✍️

https://www.abler.io/shop?country=IS&mode=programs&search=Ger%C3%B0arsafn&product=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTgyNzg%3D

Myndlistarnámskeið 6. – 10. júlí

Á námskeiðinu fá krakkar kynnast ýmsum gerðum myndlistar. Þau munu búa til skúlptúra, teikna, ljósmynda, mála og vinna í allskyns efni!

Meðfram myndlistarkennslu verður lögð áhersla á útileiki og hópefli.

Á síðasta degi námskeiðisins, föstudaginn 10. júlí verður foreldrum og forráðamönnum boðið að koma og sjá afrakstur vikunnar.

Námskeiðið stendur í fjóra tíma, frá 9:00 – 13:00 og mikilvægt er að koma klædd eftir veðri með léttan bita og hádegisnesti.

Bókagerð: 13. – 17. júlí

Í þessu námskeiði læra börn að gera sínar eigin teiknibækur frá grunni! Á námskeiðinu verður kennt allt frá pappírsgerð til teikningar og í lok námskeiðisins munu börnin eiga sína eigin skissubók með eigin teikningum.

Á síðasta degi námskeiðisins, föstudaginn 17. júlí verður foreldrum og forráðamönnum boðið að koma og sjá afrakstur vikunnar.

Meðfram myndlistarkennslu verður lögð áhersla á útileiki og hópefli.

Námskeiðið stendur í fjóra tíma, frá 9:00 – 13:00 og mikilvægt er að koma klædd eftir veðri með léttan bita og hádegisnesti.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

06
nóv
Gerðarsafn
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
07
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
07
nóv
Salurinn
07
nóv
Bókasafn Kópavogs
08
nóv
Salurinn
09
nóv
Bókasafn Kópavogs
10
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
11
nóv
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

11
nóv
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira