Fræðsluátak fyrir nemendur í 9. bekk

Á dögunum stóðu menningarstofnanir Kópavogs að kynningar- og fræðsluátaki fyrir níundu bekkinga í grunnskólum Kópavogs. Markmið átaksins var að kynna starfsemi stofnananna og var lögð áhersla á möguleika nemenda til að nýta þær sem innblásturs- og upplýsingaveitur og hvetja nemendur til skapandi, en jafnframt  gagnrýninnar hugsunar.
Á Náttúrufræðistofu Kópavogs var fjallað sérstaklega um upplýsingaöflun á netinu og hvað helst ber að varast við slíka upplýsingaöflun. Reynt var að svara spurningum eins og hvað eru „réttar upplýsingar“ og tekin dæmi um hvernig framsetning upplýsinga skiptir máli. Áhersla var lögð á að nemendur tileinkuðu sér gagnrýna hugsun, öfluðu sér upplýsinga og reyndu að meta gæði þeirra við ákvarðanatöku og skoðanamyndun. Í lokin fengu nemendur verkefni þar sem þeir ræddu nokkur álitamál, s.s. hvort heimila ætti veiðar á heiðlóu og hvort selja bæri aðgang að Esjunni.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

22
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

25
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
Salurinn
26
ágú
28
ágú
Salurinn
27
ágú
Bókasafn Kópavogs
29
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

29
ágú
05
sep
Menning í Kópavogi
29
ágú
Gerðarsafn
29
ágú
Gerðarsafn
02
sep
Bókasafn Kópavogs
03
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR