22.jan 13:30

Salurinn

Framúrskarandi tónlistarfólk flytur vel valin íslensk einsöngslög.
3.950 - 5.300 kr.

Sex framúrskarandi flytjendur; fjórir einsöngvarar og tveir píanóleikarar, flytja úrval íslenskra einsöngslaga.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Ár íslenska einsöngslagsins, þar sem þekktar og óþekktar sönglagaperlur fá að skína.

Flutt verða lög eftir mörg af okkar ástsælustu tónskáldum, þ.á.m. Jón Ásgeirsson, Jórunni Viðar, Sigvalda Kaldalóns, Atla Heimi, Þorkel Sigurbjörnsson og Árna Thorsteinsson en einnig má heyra nýrri lög eftir m.a. Hildigunni Rúnarsdóttur, Tryggva M. Baldvinsson og Jóhann G. Jóhannsson.

Boðið er upp á nýstárlegan tónleikatíma: sunnudaga kl. 13.30.

Ár íslenska einsöngslagsins

Tónleikaröð þessi er hjartfólgið verkefni Jónasar Ingimundarsonar, píanóleikara og tónlistarfrömuðar sem hefur átt einstakan þátt í íslensku tónlistarlífi síðastliðna áratugi. Hann er þekktur fyrir píanóleik sinn bæði sem einleikari og meðleikari. Íslenska einsönglagið hefur verið Jónasi sérstaklega hugleikið og er starf hans í þágu þess ómetanlegt.

Önnur forsenda þessarar tónleikaraðar er hátíðarútgáfa á Íslenskum einsöngslögum, alls 289 lög eftir 66 tónskáld, samin á árunum 1918–2018, sem kom út í tilefni fullveldisafmælis þjóðarinnar 1. desember 2018. Forlagið Ísalög og eigandi þess, Jón Kristinn Cortez, annaðist útgáfuna og hlaut hann íslensku fálkaorðuna fyrir verkið þegar útgáfan hafði náð hámarki. Er þetta safn m.a. notað til að velja viðfangsefni tónleikanna. Öll útgáfa Jóns Kristins er til sýnis og sölu á öllum tónleikunum.

FRAM KOMA

Ingibjörg Guðjónsdóttir

Sópran

Karin Björg Torbjörnsdóttir

Mezzosópran

Dagur Þorgrímsson

Tenór

Gunnlaugur Bjarnason

Baritón

Eva Þyri Hilmarsdóttir

Píanó

Guðríður St. Sigurðardóttir

Píanó

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

20
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
Bókasafn Kópavogs
20
ágú
02
nóv
Gerðarsafn
20
ágú
Gerðarsafn
21
ágú
Bókasafn Kópavogs
21
ágú
Gerðarsafn
22
ágú
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

25
ágú
Bókasafn Kópavogs
26
ágú
28
ágú
Salurinn
11
okt
12
okt
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn

Sjá meira

Salurinn

26
ágú
28
ágú
Salurinn
26
ágú
Salurinn
26
ágú
Salurinn
03
sep
Salurinn
04
sep
Salurinn
05
sep
Salurinn
20:30

Belonging?

06
sep
Salurinn
07
sep
Salurinn
10
sep
Salurinn
11
okt
12
okt
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn

Sjá meira