Inni í rökkvaðri Kópavogskirkju mun hljóðverk Þórönnu Björnsdóttur, Altarishljóð fyrir Kópavogskirkju, hljóma á klukkutímafresti kl. 18.30, 19.30, 20.30, 21.30 og 22.30, föstudagskvöldið 3. febrúar, á Safnanótt. Verkið er um fimmtán mínútur í flutningi.
Altarishljóð fyrir Kópavogskirkju voru samin að beiðni Salarins í Kópavogi og frumflutt á tónleikunum Óður til Kópavogs sem fram fóru í maí 2022. Altarishljóð eru hversdagsleg hljóð sem Þóranna fann í umhverfi Kópavogs. Innblásin af ýmsu úr sögu bæjarins og menningu mótaði hún úr hljóðupptökum hljóð – og tónvefnað og aðlagaði að hljómburði Kópavogskirkju. Með verkinu vill Þóranna tengjast kyrrð hússins og vera í samspili við hljóðlát skilaboð þeirra töfrandi listaverka sem í kirkjunni eru er túlka kristna trúarheimspeki og lyfta huganum til andlegra hugleiðinga.
Sérstakar þakkir fá Hannes Sigurgeirsson kirkjuvörður, Álfheiður Björgvinsdóttir og Skólakór Kársnesskóla.
Nýju vídeóverki eftir Þórönnu Björnsdóttur verður varpað á austurhlið Kópavogskirkju á Vetrarhátíð frá 18 – 23, föstudagskvöldið 3. febrúar og laugardagskvöldið 4. febrúar.
Vídeóverk Þórönnu er í samtali við dulspekilega myndlist Gerðar Helgadóttur og hið alsjáandi auga sem finna má í nokkrum listaverkum Gerðar, meðal annars í tillögum að altaristöflu fyrir Kópavogskirkju. Þóranna vinnur í verki sínu úr nýjum upptökum af augum og augnatilliti tæplega hundrað Kópavogsbúa. Augun, kvik, spurul, leitandi, snörp og alsjáandi munu leika um útvegg kirkjunnar á Vetrarhátíð í draumkenndu og hugvíkkandi verki sem minna á óravíddir hugans og hins innra lífs. Listamaðurinn Vikram Pradhan aðstoðaði við gerð verksins.