Sýningin Draumaeyjan okkar var opnuð með pompi og prakt á laugardaginn kemur kl. 13 og eru öll börn hjartanlega velkomin!
Á sýningunni eru verk Ungra sýningarstjóra undir merkjum Vatnsdropans til sýnis en hópurinn hefur unnið að þeim í vetur. Verkin sem verða til sýnis eru: Plast í matinn, Eyjan, Skrímslaspilið, Fjársjóður Múmínsnáðas, Á ferð og flugi með Valmundi, Sjálfbærni í poka, Við erum aular, Jafnrétti, Björgum hvölunum, Plönturnar tala, Droparnir segja sína skoðun, Draumaeyjan okkar og Fjársjóðsleitin.
Vatnsdropinn snýst um að valdefla börn og vinna með klassískar Norrænar barnabókmenntir, Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna ásamt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Þar eru gildi mannúðar í hávegum höfð og finna má samhljóm með þeim gildum í verkum Norrænu rithöfundanna sem Ungir sýningarstjórar hafa unnið með í Vatnsdropanum.