Kristín Stefánsdóttir og Páll Óskar ætla að leiða saman hesta sína og blása til stórtónleika klassísku poppmeistaranna. Dusty Springfield, The Beatles, Carpenters, Dionne Warwick, Aretha Franklin, Beach Boys ásamt fleirum verða gerð skil á þessum glæsilega viðburði.
Pál Óskar þarf ekki að kynna, enda er hann einn ástsælasti tónlistarmaður landsins. Hann er mikill aðdáandi klassíska poppsins og hefur sungið og haldið fjölda tónleka með lögum meistaranna og hefur algjöra sérstöðu hvað það varðar.
Kristín er sömuleiðis mikill aðdáandi þessarar tónlistar og hefur haldið nokkra stóra og glæsilega tónleika við góðar undirtektir. Hún hefur haldið tónleika með lögum Burt Bacharach og Carpenters og einnig tónleika með lögum Noruh Jones.
…
Frá Burt Bacharach tónleikum Kristínar: