Ragnhildur Katla Jónsdóttir les úr nýrri barnabók sinni, Ruslalandi, á fyrstu hæð Bókasafns Kópavogs.
Barnabókin Ruslaland er gerð til þess að vekja umræður og áhuga barna á umhverfisáhrifum neysluvenja okkar. Sagan gerist í heimi þar sem flokkun og umhverfishugsun er ekki til staðar og því er allt að drukkna í rusli. Getur ein manneskja og lítil planta dugað til að breyta öllu?
Aðgangur ókeypis og öll velkomin.