Sunnudaginn 26. nóvember kl. 13:00 verður teiknismiðja í Gerðarsafni þar sem börn læra fjarvíddarteikningu á skemmtilegan og einfaldan hátt. Eftir stutta leiðsögn um sýninguna Skúlptúr/Skúlptúr verður farið í fræðslurými Gerðarsafns, Stúdíó Gerðar, og teiknað á stór blöð saman. Leiðbeinandi er Örn Alexander Ámundason myndlistarmaður.
Smiðjan hentar vel fyrir börn eldri en 6 ára og fjölskyldur þeirra. Þátttaka í smiðjunni er börnum að kostnaðarlausu.
Hlökkum til að sjá ykkur!