01.feb 18:00 ~ 03.feb 23:00

Vetrarhátíð

Menning í Kópavogi

Fimmtudagur 1. febrúar  

Sundlaug Kópavogs
Opið til 22:00

18:00 – 18:30 Töframaðurinn Einar Aron
Einar Aron er einn yngsti töframaður landsins en hefur þrátt fyrir það komið víða við og skapað sér nafn sem eftirsóttur töframaður, bæði meðal barna og fullorðinna. 

18:30 – 18:50 Skólahljómsveit Kópavogs
Sprellfjörug lagasyrpa með lúðurþeyturum framtíðarinnar.

20:15 – 21:00 Sundballetthópurinn Eilífðin
Þátttökutími. Sundballethópurinn Eilífðin eru systurnar Margrét Erla Maack, fjöllistadís og Vigdís Perla Maack, sviðslistakona.

Föstudagur 2. febrúar 

Bókasafn Kópavogs
Opið til 23:00  

18:00 – 18:30 Ljóðagjörningur (2. hæð)
Eyrún Ósk Jónsdóttir flytur ljóð úr ljóðabók sinni „Úr svartnættinu miðju skín ljós“ við trommuundirleik Akeem Richards sem spilar á afrískar trommur.

18:00 – 20:00 Stjörnumerkjaperl og stjörnumerkjabarmmerki (3. hæð)
Hvaða stjörnumerki ertu? Hrútur, vatnsberi, fiskur eða naut? Komum saman og perlum okkar eigið stjörnumerki eða búum til flott stjörnumerkjabarmmerki á Safnanótt.

18:45 – 19:00 Lúðrasveit verkalýðsins
Eldhress lagasyrpa með einni skemmtilegustu lúðrasveit landsins.

19:00 – 22:00 Silent diskó (2. hæð)
Bókasafnið breytist í hljóðlátan næturklúbb á Safnanótt þegar boðið verður upp á Silent diskó á annarri hæð safnsins.

21:00 – 21:30 Síðkvöldstónleikar með Margréti Eir (2. hæð)
Ljúfar útsetningar á kunnum popplögum úr öllum áttum, nýjum og gömlum. Börkur Hrafn Birgisson leikur á gítar.



21:00 – 23:00 Sigga Kling á Safnanótt
Spákonan og gleðigjafinn Sigga Kling verður á vappi um Bókasafn Kópavogs á Safnanótt, kíkir í kristalskúluna og miðlar til gesta af sinni alkunnu visku.

22:00 – 23:00 Kvöldstund með Friðgeiri og Braga Páli (2. hæð)
Lofa má fjörugri kvöldstund með tveimur rithöfundum, sem mögulega eru einn og sami maðurinn?

Gerðarsafn
Opið til 23:00

18:00 – 18:45 Venjulegir staðir / Joe Keys og Haraldur Jónsson á Safnanótt
Haraldur Jónsson og Joe Keys veita innsýn í verk sín á sýningunni Venjulegir staðir í Gerðarsafni

20:00 – 23:00 Leiðsögn og innsýn í Moltu, þverfaglega innsetningu
Rósa Ómarsdóttir danshöfundur ásamt nemendum af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands sem koma fram milli 21 og 22.

20:30 – 23:00 DJ Ívar Pétur
Krónikan er með opið fram eftir kvöldi og frá kl. 20:30 – 23:00 þeytir DJ Ívar Pétur skífum.

21:30 – 22:00 Innlit í varðveislurými Gerðarsafns
Hulinn heimur varðveislurýmisins afhjúpaður gestum á Safnanótt

Ókeypis á allar sýningar í Gerðarsafni á Safnanótt.

Hljóðabókasafn Íslands (v. Digranesveg 5)
Opið frá 18 – 22.

Komið og prófið að lesa inn sögur úr ótrúlegu ímyndunarafli gervigreindarinnar, sjáið atvinnulesara að störfum eða lærið fluguhnýtingar. Öll velkomin!

19:30 – 19:45 Lúðrasveit verkalýðsins blæs í baráttulúðra.



20:30 – 21:00 Nemendur úr framhaldsbraut Klassíska listdansskólans sýna frumsamið verk. Innblásturinn er tekinn frá hversdagslegum hreyfingum, atburðum og stöðum.

Kópavogskirkja  

18:30 – 24:00 Sviðsmyndir. Nýtt ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur.
Verkið Sviðsmyndir er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju.

Molinn – menningarhús ungmenna v. Hábraut 2 

21:00 – 23:00 Tilraunakvöld listamanna
Tónlistafólk, uppistandarar, dansarar og myndlistamenn stíga á svið og sýna áhorfendum brot af fjölbreyttum verkum í vinnslu.

Náttúrufræðistofa Kópavogs  

18:00 – 23:00 Náttúrubingó um Borgarholtið
Hver er þessi umtalaði vetrarbúningur náttúrunnar? Hvað er hægt að skoða þegar hún sefur, ef hún gerir það nokkurn tímann?Náttúrubingó með vetrarþema. Falleg baverðlaun fyrir heppna bingóspilara.

19:00 – 20:00 Stjörnuskoðun með Stjörnu-Sævari
Skyggnst verður upp í himininn á Safnanótt, spáð í stjörnur og Júpíter skoðaður í gegnum sjónauka ef veður leyfir. Viðburður færist inn á Gerðarsafn ef veður er með vesen.

Salurinn  

20:00 – 21:00 Layali Fairuz | Nætur Fairuz
Líbanska söngkonan Fairuz er dýrkuð og dáð víða um heim. Hér hljómar hrífandi tónlist Fairuz í flutningi einvala hóps tónlistarfólks og gestasöngvara.

y-gallerý

17:00 – 19:00 Facade No. 3. Opnun á sýningu Bjarna Þórs Péturssonar

Laugardagur 3. febrúar  

Gerðarsafn  

15:00 -16:00 Gerðarverðlaunin
Lifandi tónlist í flutningi Davíðs Þórs Jónssonar. Nýr handhafi Gerðarverðlauna tekur á móti viðurkenningu.

Kópavogskirkja  

18:30 – 24:00 Sviðsmyndir. Nýtt ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur
Verkið Sviðsmyndir er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju.

Sjá má alla viðburði hér

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
maí
Bókasafn Kópavogs
17:00

Umhirða ávaxtatrjáa

16
maí
Gerðarsafn
10:00

Foreldramorgunn

18
maí
Gerðarsafn

Together | Palestínsk útsaumssmiðja

18
maí
Gerðarsafn
13:00

Leiðsögn á pólsku

21
maí
Bókasafn Kópavogs
10:00

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

21
maí
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sumarlestrargleði

22
maí
Bókasafn Kópavogs
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

22
maí
Bókasafn Kópavogs
12:15

Leslyndi með Lilju Sigurðardóttur

23
maí
Bókasafn Kópavogs
17:00

Sagnaganga: Fantasíur og hrollvekjur í Kópavogi

27
maí
01
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Plöntuskiptimarkaður

03
jún
08
jún
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

01
júl
06
júl
Bókasafn Kópavogs
08:00

Bókamarkaður

Sjá meira