Hver er þessi umtalaði vetrarbúningur náttúrunnar? Hvað er hægt að skoða þegar hún sefur, ef hún gerir það nokkurn tímann?
Náttúrustofa Kópavogs stendur fyrir náttúrubingói með vetrarþema. Þar fær fólk rými til að velta vöngum yfir þessum spurningum og jafnvel öðlast svör við þeim að hluta.
Bingóspjöldin má nálgast í afgreiðslu Gerðarsafns. Heppnir þátttakendur sem skila spjöldunum í afgreiðslu Gerðasafns eiga möguleika á að eignast áritað eintak af bókinni Hamfarir eftir Stjörnu Sævar. Dregið verður í bingóinu 21. febrúar.
Komið klædd eftir veðri og með vasaljós eftir myrkur!