Brynhildur Björnsdóttir söngkona með meiru býður til söngtónleika í fordyri Salarins þar sem hún býður sumarið velkomið ásamt vinum sínum Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleikara og stórgleðisveitinni
Mandólín.
Á efnisskrá eru uppáhaldslög úr öllum áttum. Við sögu koma smellir eftir Spilverk þjóðanna, Moses Hightower, Kate Bush, Astor Piazzolla og Kurt Weill svo nokkur séu nefnd.