Boðið er upp á göngu um Selfjallshringinn við Lækjarbotna, fimmtudaginn 24. júní klukkan 17 – 19. Gangan tekur ca tvo tíma með stoppum. Aðgangseyrir er enginn og öll velkomin. Leiðsögumaður er Einar Skúlason.
Nánar:
Gengið upp á Selfjall og eftir því endilöngu til vesturs og svo niður
fyrir og um sjálfa Lækjarbotna til baka á upphafsstað. Spjallað verður um eldvirkni og Húsfellsbruna (hraunið sunnan við Selfjall), skálann Heiðarból og fleira og kíkt á Botnahelli.
Gengið er á melum, malarvegum og lyngi og grasi. Gott að vera með stafi. Vegalengd ca 4-5 km og 200 m/hækkun.
Bílastæði ofan við Waldorf skólann (ekki keyra niður að skólanum) sjá staðsetningu bílastæðis google maps:
https://maps.app.goo.gl/nghEi9kLeLJHXspR9