Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á stórkostlega kvöldstund fulla af gjörningum í Gerðarsafni, þar sem fjölbreyttur hópur hæfileikaríkra listamanna kemur saman til að fagna listinni á fjölbreyttan hátt!
Listamenn sem koma fram eru Hildur Elísa Jónsdóttir, Project HOFIE (Linde Rongen og Júlía Kolbrún Sigurðardóttir), Karólína Rós Ólafsdóttir og Dýrfinna Benita Basalan.
Þessi einstaki viðburður fer fram í kjölfar opnunarhátíðar Hamraborgarhátíðarinnar á Hálsatorgi, sem hefst klukkan 16:30.
Nánari upplýsingar um hvern gjörning verða birtar fljótlega.
Gjörnirngakvöldið á Gerðarsafni er ókeypis og öll velkomin.
Hamraborg Festival er stutt af:
Kópavogsbæ
Myndlistarsjóði
Barnamenningarsjóði