23.okt 12:15 - 13:00

Hvað er jarðvegsmengun?

Náttúrufræðistofa Kópavogs

„Hvað er“ er erindaröð á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs, en þar varpa sérfræðingar úr ýmsum áttum ljósi á ólík hugtök og skýra þau út á mannamáli.

Að þessu sinni mun Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, sérfræðingur í umhverfis- og jarðefnafræði, fjalla um jarðvegsmengun sem getur haft víðtæk áhrif á tilveru okkar og heilsu, hreina vatnið og lífríki og fleira sem gæti komið á óvart. Að erindi loknu mun Erla Guðrún svara spurningum sem kunna að brenna á gestum.

Erla starfar á sviði samgangna og umhverfis hjá Verkís og kemur til okkar sem fulltrúi FUMÍS – Fagfélags um mengun á Íslandi. Félagið var stofnað árið 2024 en markmið þess er að stuðla að aukinni þekkingu og vönduðum vinnubrögðum í málefnum mengunar í jarðvegi, yfirborðs- og jarðvatni. Félaginu er einnig ætlað að stuðla að auknu samráði og samstarfi ólíkra aðila í málefnum er varða mengun.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

24
sep
Salurinn
01
okt
Bókasafn Kópavogs
29
okt
Bókasafn Kópavogs
05
nóv
Bókasafn Kópavogs
26
nóv
Salurinn
03
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

16
sep
Bókasafn Kópavogs
17
sep
Bókasafn Kópavogs
17
sep
Bókasafn Kópavogs
18
sep
Gerðarsafn
19
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

19
sep
Salurinn
19
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Bókasafn Kópavogs
20
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
11
okt
12
okt
Salurinn
02
nóv
25
apr
Salurinn

Sjá meira

Náttúrufræðistofa Kópavogs

20
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs
20
sep
Náttúrufræðistofa Kópavogs

Sjá meira