04.mar 20:00 - 21:00

Haltu mér – slepptu mér: Hinseginleikinn og ungmenni

Bókasafn Kópavogs

Aðalsafn

Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.

Í dag eru sífellt fleiri opin fyrir því að börn og unglingar eru alls konar og ungmenni líklegri til að koma fyrr út úr skápnum en áður. Frekar en að hræðast það er það tækifæri til að fagna – fagna því að barnið sé að kynnast sjálfu sér betur, hafi frelsi til þess og tækifærinu til að vera til staðar fyrir barnið og kynnast því betur. 

Hvort sem þitt eigið barn er hinsegin eða á hinsegin vini og félaga getur skipt miklu máli að foreldrar hafi lágmarksskilning á hinseginleikanum til þess að geta verið til staðar og stutt sitt ungmenni.

Edda Sigurðardóttir ræðir við foreldra um hvað er að vera hinsegin og útskýrir helstu hugtök og orðnotkun. Einnig verður fjallað um stöðu og áskoranir ungs fólks þegar kemur að hinseginleika, hvernig foreldrar geti verið styðjandi og hvaða úrræði standa til boða.

Edda Sigurðardóttir er fræðslustýra Samtakanna ‘78 en auk þess að vera foreldri sjálf hefur hún hefur margra ára kennslureynslu bæði í leik- og grunnskólum, er menntaður heimspekingur og kennari. 

Samtökin ‘78 – félag hinsegin fólks á Íslandi eru hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi. Samtökin eru málsvari hinsegin fólks, veita því styrkari rödd í samfélagsumræðunni og berjast fyrir lagasetningu sem skilar bættum réttindum hinsegin fólks. Samtökin halda uppi félagsstarfi og stuðningshópum auk þess sem þau bjóða upp á einstaklingsráðgjöf, sérstaklega fyrir hinsegin fólk og aðstandendur þeirra. Þá sinna Samtökin ’78 umfangsmikilli fræðslustarfsemi þar sem skólar, stofnanir og fyrirtæki eru heimsótt og frædd um hinsegin málefni. Samtökin ‘78 eru þannig hinsegin fólki skjól, veita þeim málsvörn, ráðgjöf, eru samkomustaður og stuðla að betra lífi fyrir hinsegin fólk út á við í gegnum bæði fræðslu og réttindabaráttu.


Önnur erindi í Haltu mér slepptu mér koma inn á málefni á borð við hinseginleikann, svefn og ofbeldi ungmenna.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

7. janúar 2025, kl. 20:00
Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnráðgjafi, fjallar um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna.

4. febrúar 2025, kl. 20:00
PISA, lesskilningur og lestur ungmenna
Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, rýnir í niðurstöður PISA-könnunarinnar í lesskilningi árið 2022. Hún mun fjalla um hæfniþrep PISA og tengja þau við samfélagslega umræðu hér á landi. Þá mun hún fjalla um mál- og læsiseflandi samskipti á heimili og í skóla sem leggja grunn að djúpum lesskilningi, eins og metinn er í lesskilningshluta PISA.

1. apríl 2025, kl. 20:00
Tölvuleikir og tölvuleikjanotkun ungmenna
Kristján Ómar Björnsson og Patrekur Gunnlaugsson, kennarar í grunnskólanum NÚ í Hafnarfirði, ræða um tölvuleiki og tölvuleikjanotkun ungmenna, hvaða leikir eru vinsælir, hvað foreldrar geta gert til að styðja börn sín og sýna áhugamáli þeirra áhuga ásamt því að stuðla að líkamlegu og andlegu heilbrigði og félagslegum tengslum.

29. apríl 2025, kl. 20:00
Ofbeldi og vopnaburður ungs fólks
Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands, rýnir í gögn sem varpa ljósi á þróun ofbeldis meðal ungs fólks og hverjir helstu áhættuþættirnir eru. Áhersla verður lögð á að skoða hvað virkar í forvörnum, hvaða aðferðir reynast árangurslausar og hafa jafnvel öfug áhrif. Auk þess verður fjallað um hvaða inngrip hafa reynst árangursríkust til að draga úr áhættuhegðun og koma í veg fyrir frekari brot.

Deildu þessum viðburði

07
jan
Bókasafn Kópavogs
04
feb
Bókasafn Kópavogs
04
mar
Bókasafn Kópavogs
01
apr
Bókasafn Kópavogs
29
apr
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

22
des
Menning í Kópavogi
13:00

Jólalundur

22
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
23
des
Náttúrufræðistofa Kópavogs
23
des
Gerðarsafn
30
des
Salurinn
03
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

04
jan
Bókasafn Kópavogs
06
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Bókasafn Kópavogs

03
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

04
jan
Bókasafn Kópavogs
06
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
07
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
08
jan
Bókasafn Kópavogs
09
jan
Bókasafn Kópavogs
10
jan
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

Sjá meira