Sólrún Ósk Lárusdóttir sálfræðingur fjallar um líkamsímynd yngri barna sem og líkamsímynd mæðra eftir fæðingu. Fjallað verður um áhrifaþætti, hvað við þurfum að vita og hvað við getum gert til að bæta eigin líkamsímynd og barna okkar.Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.