Sjónarafl – Vilt þú læra myndlæsi?
Gerðarsafn fær í heimsókn góðan gest frá Listasafni Íslands, Ragnheiði Vignisdóttur fræðslu- og útgáfustjóra, til að kynna aðferðir myndlæsis með verkum eftir Barböru Árnason sem stendur nú yfir í Gerðarsafni. Gestir fá tækifæri til að skoða verk á sýningunni Barböru og taka þátt í samræðum sem Ragnheiður leiðir. Gestir eru því þátttakendur í samtalinu og gefa gaum að því sem þeir sjá og uppgötva jafnvel nýjar hliðar á verkunum í gegnum aðferðir myndlæsis.
Viðburðurinn fer fram í Gerðarsafni miðvikudaginn 11. júní kl. 12.15 og öll eru hjartanlega velkomin eins og húsrúm leyfir!
Aðgöngumiði á safnið gildir, frítt fyrir árskortshafa.