Austur-evrópsk hátíð heppnast vel og meiri fjölmenning í bígerð

Bókasafn Kópavogs í samstarfi við GETU, félagasamtök er vinna að jákvæðu fjölmenningarlegu samfélagi, stóðu á dögunum fyrir austur-evrópskri matar- og menningarhátíð.

Mikil gleði og samstaða ríkti á viðburðinum og fólk á öllum aldri nutu hátíðarinnar.

Boðið var upp á ýmsar smiðjur, matar-smakk, tónlist og fleira. Pólsk prinsessa dansaði með krökkunum og bauð upp á prinsessu myndir til að lita. Tékkneskt brúðuleikhús mætti á svæðið. Úkraínska samfélagið á Íslandi eldaði hefðbundinn úkraínskan mat og bauð upp á matarsmakk. Haldin var fánasmiðja þar sem börn gátu komið og teiknað fána frá austur Evrópu og hengt upp á vegg til að skreyta safnið. Ungversk söngkona söng þjóðlög frá ungverjalandi í þjóðbúningi héraðsins sem hún er frá. Pólsku mælandi gestir fengu gefins barnabækur á Pólsku sem Bókasafn Hafnarfjarðar lagði til. Þá tóku Móðurmál – samtök um tvítyngi og Heimili og skóli, landsamtök foreldra þátt í viðburðinum með kynningu á starfsemi sinni fyrir gesti og voru þau einnig með bækur gefins á ýmsum tungumálum Austur Evrópu fyrir fjöltyngda gesti.

Það var mikið hlegið og nutu gestir samverunnar. Höfðu margir á orði hversu gott það var að fá tækifæri og rými til að hitta landa sína og nágranna.

Framundan í fjölmenningu
Bókasafnið leggur áfram áherslu á að bjóða upp á fjölmenningarlega viðurði. Á morgun (miðvikudaginn 18. mars) er vinnustofa á vegum W.O.M.E.N. félag kvenna af erlendum uppruna um réttindi á vinnumarkaði. Mánuði síðar, 18. apríl verður svo grísk matar- og menningarhátíð. Öll eru velkomin á báða þessa viðburði.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

17
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Bókasafn Kópavogs
18
mar
Náttúrusafn Kópavogs
18
mar
Náttúrusafn Kópavogs
20
mar
Salurinn
20
mar
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

21
mar
Salurinn
21
mar
Bókasafn Kópavogs
21
mar
Salurinn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR