08.apr 2026 12:15 - 13:00

Leiðsögn | Jón Proppé

Gerðarsafn

Verið velkomin á leiðsögn listheimspekingsins Jóns Proppé um sýninguna Hörður miðvikudaginn 8. apríl klukkan 12:15.

Hörður Ágústsson (1922-2005) nálgaðist myndlist, hönnun, rannsóknir og kennslu af heildrænni hugsun. Hugsun sem var fjarri því að vera einföld eða línuleg heldur bar með sér löngun til að má út skil á milli ólíkra listgreina til að finna sameiginlegan og margslunginn kjarna sjónmenningar.

Hörður þróaði nálgun sína út frá innblæstri sem hann sótti úr umhverfi sínu og hugmyndafræði um eðli og möguleika sjónlista. Í allri sköpun sinni leyfði hann sér að flæða á milli ólíkra tjáningarleiða, bæði hvað varðar fagurfræði og listgreinar. Í viðtali segir Hörður að hann hafi sveiflast á milli leitarinnar að hinu fullkomna formi og ljóðrænnar tjáningar: „Í mér eru bæði arkitekt og ljóðskáld og þeir eru sífellt að rífast.“

Á sýningunni eru verk Harðar sem birta nálgun hans á form- og litafræði á árunum 1955-1978. Verkin á sýningunni þvera það sem hefðbundið væri flokkað sem myndlist og hönnun sem tengja fullkláruð verk, undirbúningsverk og hugmyndavinnu saman.  Í þessari formrænu könnun hans má finna það svið þar sem arkitektinn og ljóðskáldið tvinnast hvað mest saman, þar sem rannsakandinn og skaparinn ná saman í heildrænni hugsun um kjarna allrar listar.

Sýningarstjórn sýningarinnar er í höndum Brynju Sveinsdóttur og Studio Studio (Arnari Frey Guðmundssyni og Birnu Geirfinnsdóttur).

Sýningarstjórar eru Brynja Sveinsdóttir og Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir).

Deildu þessum viðburði

09
sep
Bókasafn Kópavogs
16
sep
Náttúrusafn Kópavogs
07
okt
Bókasafn Kópavogs
04
nóv
Bókasafn Kópavogs
18
nóv
Náttúrusafn Kópavogs
02
des
Bókasafn Kópavogs
16
des
Salurinn
12:15

Lay Low

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

08
sep
Bókasafn Kópavogs
09
sep
Bókasafn Kópavogs
09
sep
Salurinn
20:00

Fall

09
sep
Bókasafn Kópavogs
10
sep
19
sep
Bókasafn Kópavogs
11
sep
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

11
sep
Salurinn
12
sep
Bókasafn Kópavogs
12
sep
Salurinn
12
nóv
23
nóv
Bókasafn Kópavogs
01
des
19
des
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

Gerðarsafn

16
sep
25
jan
Gerðarsafn
18:00

Valgerður

Sjá meira