Krakkahátíðin Kópurinn

Heimsins mest listelskandi kópur?
Auðvitað býr hann í Kópavogi!

Kópurinn býður krökkum og fjölskyldum þeirra að koma og njóta lista sem sérstaklega eru ætluð þeim.

Krakkahátíðin er barnamenningarhátíðin okkar hér í Kópavogi. Hún er sett á laggirnar í ár með nýjum áherslum og nýju útliti.

Kópurinn okkar er forvitinn prakkari sem elskar list og hann býður öllum að koma og upplifa, því það verður ótal margt í boði.

Geggjuð tónlist, skemmtilegar leik-, dans- og sirkussýningar og smiðjur sem virkja sköpunargáfuna.

Allir viðburðirnir fara fram milli kl. 12 og 16 laugardaginn 9. maí í menningarhúsunum í Kópavogi og aðgangur er ókeypis.

Hér má sjá alla viðburðina.

Verið öll hjartanlega velkomin, stór sem smá.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

09
okt
Gerðarsafn
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Bókasafn Kópavogs
10
okt
Salurinn
13:00

Dansdropi

11
okt
Salurinn
12
okt
Bókasafn Kópavogs
13
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Bókasafn Kópavogs
14
okt
Salurinn
14
okt
Bókasafn Kópavogs
16:30

Myndgreining

14
okt
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira