Emilíana Torrini er Bæjarlistamaður Kópavogs 2026

Kópavogsbær hefur tilnefnt söngkonuna og lagahöfundinn Emilíönu Torrini Bæjarlistamann Kópavogs árið 2026. Það var Elísabet Sveinsdóttir formaður menningar- og mannlífsnefndar sem tilkynnti valið við hátíðlega athöfn í Salnum í dag. Bæjarlistamaður Kópavogs er valinn árlega af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs en markmiðið með valinu er að varpa ljósi á fjölbreytt og öflugt listalíf í bænum og heiðra listamenn sem hafa auðgað menningarlíf Kópavogs. 

Emilíana er fædd og uppalin í Kópavogi og hefur búið í bæjarfélaginu með hléum. Hún hóf ung tónlistarferil sinn í Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og nýtur nú alþjóðlegrar hylli fyrir söng sinn og tónsmíðar. Tilnefningin er viðurkenning fyrir það ómetanlega framlag sem Emilíana hefur fært íslensku og alþjóðlegu tónlistarsenunni um langt árabil. 

Það er mér mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu og fá að bera titilinn Bæjarlistamaður Kópavogs. Ég er þakklát fyrir traustið og hlýjuna sem mér hefur verið sýnd og hlakka til að fá að leggja mitt af mörkum til lista- og menningarlífsins í bænum, sagði Emilíana við þetta tækifæri“ 

Það er Kópavogsbæ sannur heiður að fá listamann á borð við Emilíönu Torrini í hóp bæjarlistamanna Kópavogs. Hún hefur farið sigurför um heiminn, alltaf farið sínar eigin leiðir, haldið í sína einstöku rödd og listrænu sýn. Tónlist hennar hefur snertir fólk víða um heim og skapað tengingu þvert á menningu og landamæri. Tilnefningin er mikill fengur fyrir samfélagið okkar hér í Kópavogi og hlökkum við mikið til samstarfsins“, sagði Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar við athöfnina.   

Emilíana Torrini hefur gefið út fimm sólóplötur, sú nýjasta Miss Flower kom út árið 2024, en hinar eru Love in the Time of ScienceFisherman’s WomanMe and Armini og Tookah. Emilíana er hvað þekktust fyrir smáskífu sína Jungle Drum frá árinu 2009, sem sat í fyrsta sæti þýska vinsældalistans í átta vikur og var á listanum í alls 35 vikur. Lagið fór einnig í fyrsta sæti í Austurríki og Belgíu og naut mikillar velgengni á vinsældalistum víða um heim, meðal annars í Finnlandi, á Spáni, í Sviss, Ísrael og Ástralíu. Meðal annarra laga sem hafa fært henni alþjóðlega athygli eruSunny RoadBig Jumps og Hold Heart.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

07
maí
Bókasafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs
07
maí
Bókasafn Kópavogs
16:30

Geltu!

08
maí
Bókasafn Kópavogs
11:00

Get together

08
maí
Bókasafn Kópavogs
09
maí
Salurinn
09
maí
Salurinn
09
maí
Náttúrusafn Kópavogs
09
maí
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR