Emilíana er fædd og uppalin í Kópavogi og hefur búið í bæjarfélaginu með hléum. Hún hóf ung tónlistarferil sinn í Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og nýtur nú alþjóðlegrar hylli fyrir söng sinn og tónsmíðar. Tilnefningin er viðurkenning fyrir það ómetanlega framlag sem Emilíana hefur fært íslensku og alþjóðlegu tónlistarsenunni um langt árabil.
Emilíana Torrini hefur gefið út fimm sólóplötur, sú nýjasta Miss Flower kom út árið 2024, en hinar eru Love in the Time of Science, Fisherman’s Woman, Me and Armini og Tookah. Emilíana er hvað þekktust fyrir smáskífu sína Jungle Drum frá árinu 2009, sem sat í fyrsta sæti þýska vinsældalistans í átta vikur og var á listanum í alls 35 vikur. Lagið fór einnig í fyrsta sæti í Austurríki og Belgíu og naut mikillar velgengni á vinsældalistum víða um heim, meðal annars í Finnlandi, á Spáni, í Sviss, Ísrael og Ástralíu. Meðal annarra laga sem hafa fært henni alþjóðlega athygli eru Sunny Road, Big Jumps og Hold Heart.