Skapandi sumarstörf í Kópavogi farin af stað

Það er líf og fjör í Molanum þessa dagana þar sem Skapandi sumarstörf Kópavogs eru hafin enn eitt sumarið. Verkefnið hefur verið fastur liður í menningarlífi bæjarins í tvo áratugi og gefið hundruðum ungra skapandi einstaklinga tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, öðlast starfsreynslu og stíga sín fyrstu skref í listsköpun og frumkvöðlastarfi.

Fjöldi fyrri þátttakenda hafa haldið áfram í listnámi, menningarstörfum eða stofnað eigin verkefni og fyrirtæki. Margt þekkt listafólk hefur stigið sín fyrstu skref í Skapandi sumarstörfum. Til gamans má geta að Ásgeir Trausti, tónlistarmaður, lagði drög að plötunni sinni Dýrð í dauðaþögn sem þátttakandi í Skapandi sumarstörfum árið . Í samtali við MBL.is í júní 2019 hafði tónlistarkonan Salka Sól þetta að segja um reynslu sína af störfunum: „Við sungum m.a. í sundlauginni, strætó og á Rútstúni. Í skapandi sumarstörfum söng ég í fyrsta skipti með hljómsveit og er ekki í vafa um að það hafi mikið að segja um ákvörðun mína að læra söng- og leiklist.“ 

Í ár voru 15 verkefni valin til þátttöku úr fjölmörgum umsóknum. Að baki þeim standa 24 ungmenni á aldrinum 18-25 ára sem vinna að fjölbreyttum skapandi verkefnum í sumar, auk fjögurra þátttakenda í Vegglist. Verkefnin spanna meðal annars fatahönnun, margmiðlunarlist, kvikmyndagerð, tónlist, heimildaljósmyndun, skúlptúr, sviðslistir og samfélags- og gjörningalist.

Vel heppnuð kynning á 17. júní

Þátttakendur Skapandi sumarstarfa kynntu verkefni sín í Molanum – Miðstöð ungs fólks, fyrir bæjarbúum þann 17. júní sem hluti af hátíðarhöldunum í Kópavogi og voru viðtökurnar afar góðar. Mikill fjöldi gesta lagði leið sína í Molann þar sem hægt var að hitta listafólkið, sjá vegglistafólk að störfum og fræðast um verkefnin sem unnið er að í sumar.

Gestir fengu meðal annars að sjá klippur úr stuttmyndaverkefnum, hlýða á hljóðdæmi frá upprennandi tónlistarfólki og fylgjast með gjörningum sem fóru fram um hátíðarsvæðið. Kynningin gaf bæjarbúum einstakt tækifæri til að kynnast þeirri fjölbreyttu sköpun sem á sér stað innan hópsins og sýndi vel þann kraft sem býr í ungu listafólki í dag.

Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 20.-24. júlí

Undir lok sumars mun afrakstur verkefnanna birtast á fjölbreyttum sýningum, gjörningum og öðrum viðburðum víðs vegar um bæinn á uppskerudögum Skapandi sumarstarfa sem fara fram í menningarhúsunum 20.-24. júlí. Nákvæm dagskrá verður auglýst von bráðar. Hluti lokaverkefna verður jafnframt samofinn öðrum menningarhátíðum sem fara fram í Kópavogi, þar á meðal Hamraborg Festival og Vöku þjóðlistarhátíð, en jafnframt munu þátttakendur standa fyrir sjálfstæðum sýningum og viðburðum þar sem almenningi gefst kostur á að kynnast verkum þeirra nánar. Ef marka má fyrri ár má búast við fjölbreyttri og lifandi dagskrá sem mun setja svip sinn á Kópavog næstu vikurnar.

,,Það hefur verið stórkostlegt að fylgjast með þessu unga og hæfileikaríka listafólki takast á við fjölbreytt og metnaðarfull verkefni í sumar. Það var æðislegt hvað var mikið af fólki sem gerði sér ferð hingað til okkar í Molann þann 17. júní. Ég vona að öll sjái sér fært að koma og sjá afrakstur sumarsins á uppskerudögunum okkar 20.-24. júlí. Ég er sannfærð um að verkefni eins og skapandi sumarstörf hljóti að vera ein dýrmætasta fjárfesting í menningu og framtíð ungs fólks sem sveitarfélag getur ráðist í.“ segir Klara Elíasdóttir, umsjónarkona Skapandi sumarstarfa í Kópavogi.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

29
ágú
Gerðarsafn
01
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
05
sep
Bókasafn Kópavogs
01
sep
Salurinn
02
sep
Bókasafn Kópavogs
02
sep
Bókasafn Kópavogs
02
sep
Náttúrusafn Kópavogs
03
sep
Bókasafn Kópavogs
03
sep
Bókasafn Kópavogs

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR