Náttúran
Ég lít út um gluggann og sé undurfagurt málverk.
Snjórinn glitrar eins og demantar.
Vindurinn hvín eins og sinfónía.
Hér er fallegt.
Hér á ég heima.
Litirnir á trjánum vísa mér leiðina heim.
Stjörnurnar skína í myrkrinu.
Norðurljósin dansa með.
Litla hagamúsin
Ég trítla í grasinu og tek lítil skref,
í von að ég verði ei étin af ref.
Hver einasti dagur er barátta um mat,
mig dreymir um að borða á mig gat.
Ég fer heim á leið í mitt örugga hús,
en finn lykt af dýri, sem ekki er mús.
Hræðslan er mikil, finn hjartað berjast
get ekkert flúið, hvernig á ég að verjast?
Ég heyri nálgast þungu skrefin,
Æ, þarna glittir í ljóta refinn.
Hann á eftir mér sprettir, með stóru glotti,
nú má hann alls ekki ná mínu skotti.
Hann ýlfrar og öskrar „Ég næ þér núna,
komdu hingað til mín, litla músin brúna“.
„Komdu litla mús, þú getur ekki flúið
Viðurkenndu bara, að lífið þitt er búið“
Ég horfi upp í loftið, sé fallegan geim
svo dett ég í holu „Hey, ég komin er heim!“
Tíminn var lítill, klukkan var að tifa,
„Takk kæri Guð fyrir að leyfa mér að lifa“.
Bleika herbergið
Stundum loka ég augunum
og sé aftur bleika herbergið mitt
glimmer á veggjum, dúkkur í röð
og dótasíminn sem blikkaði alltaf
eins og hann væri að tala við mig
úr öðrum heimi.
Leikhúsið mitt flaut á teppi,
pappírs fólkið dansaði
og ég gat gert heila sýningu
fyrir sjálfa mig og engan annan.
Allt var svo litríkt, svo hátt,
svo æðislega mikið af dóti
að ég fattaði ekki
hvað ég hafði það gott.
Nú kem ég heim
og allt sem ég geri
er að kveikja á venjulegum síma,
hlusta á sögur frá öðrum
í staðinn fyrir að búa til mínar eigin.
Ég veit ekki alveg hvort það er betra
stundum finnst mér það bara tómara.
Og stundum hugsa ég
hversu skrýtið það er
að ég óskaði alltaf
að vera 13 ára
þegar ég var bara 5
eins og það að vera eldri
myndi gera allt auðveldara,
spennandi, betra.
En nú skil ég
að kannski var ég þegar
á besta staðnum.
Kannski var bleika herbergið
og allt dótið
meiri galdur en ég vissi.
Og ég vildi óska
að ég gæti farið aftur
bara í smástund
til að segja 5 ára mér
að flýta sér ekki,
að halda fast í leikinn,
að þetta verði allt fullorðins nóg
áður en ég veit af
Ljóð?
Ljóð eru bara orð
Ljóð eru bara setningar sem meika ekki sens
Ljóð eru skrítin
Ljóð eru furðuleg
Af hverju að gera ljóð?
Hver er ávinningurinn fyrir utan að mögulega efla orðaforða.
Ljóð geta verið falleg, ljót, um sorg eða hvað sem er.
Ljóð er lygi sem einhver skemmdi með sannleikanum.
Ferðalag tímans
Tíminn er fugl. Þú stekkur á bak hans og ferðast á honum. Á ferðalaginu
gerast allskonar hlutir. Hamíngjuríkir og sorglegir. En ekkert endist að
eilífu og að lokum hleypir fuglinn þér af baki. Þú lítur til baka og minnist
ferðalagsins. Eftir nokkra stund ertu tilbúin í næsta ferðalag.
Tómleiki
Blað,
tómt blað.
Er góð lýsing,
á tilfinningum.
Máney
Einhver er hér.
Hver er þar?
Máney er hér með bros á vör.
Hún heyrir allt og sér allt.
Ef þú ferð ekki að sofa þá veit hún allt um það.
Allir tala um karlinn í tunglinu en ekki konuna sem dvelur þar.
Máney er mætt með bros á vör tilbúin í slaginn.
Nú er hennar tímabil og engin mun henni gleyma
því hún lýsir upp nóttina og ég bíð alltaf eftir henni heima.