Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs 2023

Alexander Aron Karenarson

1. SÆTI

Krónublöð

Ég sný mér við og ligg á bakinu
Ég heyri hljóðlátt píanóspil – spila fyrir mig
Fyrir ofan fljóta blöðin í hægum sveip
Gul og björt, eins og sólin sem skilur eftir hlýja kossa á kaldri húð minni
Blað snertir húð mína mjúklega
Feimið og hrætt, eins og ég myndi brotna
Umkringdur gulum blómum, heyri égþau hvísla að mér
„Ég er hér“.

Alexander Aron Karenarson
9. bekk, Lindaskóla

Heiðar Þórðarson

2. SÆTI

Eitt tré

Eitt tré
Ekki neitt meira
Bara eitt tré
Það þarf ekkert meira
Einungis eitt tré
Og einn lítill fugl
Ofan á litlum steini
Það þarf ekkert meira
Á þessari litlu jörð
Það er ekkert meira

Heiðar Þórðarson
9. bekk, Lindaskóla

 

Þorbjörn Úlfur Viðarsson

3. SÆTI

Óður

Þegar flöktandi form frjósa í fjölbreytilegri endurtekningu, stendur þú eftir með óð til myrkursins.

Þorbjörn Úlfur Viðarsson
8. bekk, Álfhólsskóla

SÉRSTAKAR VIÐURKENNINGAR

Ragnhildur Una Bjarnadóttir, Kársnesskóla, 5. bekk

Álfamær

Hér undi forðum álfamær
sem uppheimsljósið þekk
og gullinbrydd var skikkjan skær
og hún stjörnu bjarta á enni bar.

Þórunn Ása Snorradóttir, Kársnesskóla, 5. bekk

Dagurinn

Dagur er góður, góður er Dagurinn.
Dagurinn er sérstakur. Dagurinn er eitt sem við
eigum, eitthvað sem við kaupum ekki.
En Dagurinn kemur með sólinni.

Freyja Kirstine Jónasdóttir, Kársnesskóla, 5. bekk

Fagra skrímsli

Fagra skrímsli, þú ert svo svo
flottur, eins og Ísland. Það er mjög sérstakt. Og það er mjög mjög
gaman að sjá þig að brosa fagra
skrímsli. Og ég verð glöð þegar ég
heyri þig hlæja og það er mjög
skemmtilegt þegar þú segir mér
brandara. Ég sé þig stundum leiðan
en þá mun ég hugga þig. Þú ert besti vinur minn.

Jóhann Emil Óðinsson og Markús Steinn Ásmundsson, Lindaskóla, 9. bekk

Ha. Hvað sagðirðu?

Hvort kom appelsínugulur eða appelsína á undan?
Eggið eða hænan?
Endirinn og lífið er framundan!
Höfum við pokann alltaf vistvænan?

Verður áfengi aftur bannað?
Hvað er eiginlega klukkan?
Er hafið fullkannað?
Bráðum kemur hrukkan!

Börkur býr til blað
Og Valur flýgur
Úlfur stekkur í blóðbað
Húni berst við tígur

Vá hvað égþarf að pissa
Hvað í lífinu lærðirðu?
Hár hvellur líklegast byssa
Ha. Hvað sagðirðu?

Heiða Kristín Eiríksdóttir, Kársnesskóla, 5. bekk

Jól

Jólaklukkurnar klingja og falleg ljós á trénu lýsa okkur í
myrkrinu. Börnin syngja jólalög og lengst inni í myrkrinu
leynist hlýja. Og inni í húsi eru fjölskyldur að opna pakka.
En börnin smá þurfa flík í gjöf, því annars kemur
jólakötturinn og tekur þau.

Ólöf Inga Pálsdóttir, Lindaskóla, 8. bekk

LÍFIÐ

Lífið er eins og fótbolti,
þú þarft kjark, sjálfstraust
og hugrekki til að sigra leikinn.

Lífið er eins og fótbolti,
þú lendir í meiðslum,
mótbyr
og árekstrum
en þú heldur samt
alltaf áfram.

Taktu hverja æfingu
og hvern leik
eins og hann sé þinn seinasti.

Alexander Aron Karenarson, Lindaskóla, 9. bekk

Vondur tími, réttur staður

Ég hélt alltaf að við værum eins og himinninn og stjörnurnar
Svo langt í burtu en svo nálægt hvort öðru
En nú sé ég að við vorum líkari sólinni og tunglinu
Svo nálægt hvort öðru en aldrei þarna á réttum tíma
Samt segir fólk að sólin og tunglið séu svo ólík
En eru samt alltaf skráð í sögubækur sem hlutir ætlaðir hvort öðru til endaloka
Samt var þetta vondur tími en réttur staður

Dómnefnd skipuðu Kristín Svava Tómasdóttir, Anton Helgi Jónsson og Þórdís Helgadóttir